Í fyrsta skiptið sem ég keypti föt fór ég heim með fötin og ég fann ógeðslega fýlu og ég var like hvaða fýla er þetta ? Og ég fór útum allt að leita af fýlunni og ég komst að því að það var skítafýla af fötunum mínum, jæja okay ég setti þau í þvottavélina á geðveikum snúning. En eitthvað var þetta og ég fór enn að leita af ógeðslegu lyktinni. Og ég fékk bara áráttu af þessari lykt þannig ég þreif öll fötin mín í skápnum og þau voru öll þrifin og fín en ég fann samt ógeðslega lykt bara kúkafýlu. Ekki góð lykt. ég var farin að halda að einhver hafi skitið í skápinn minn. Þannig ég sótthreinsaði hann líka. Og svo allt herbergið mitt. En svo var það komið að því að ég var hætt að ganga í fötum og fara út. Þangað til einn daginn fór ég fram algjörlega á bara nurlum og bol, ég ætlaði að hlaupa aftur inní herbergið þangað til ég lenti í skítnum honum Reyni bróður mínum. Hann lyktaði ekki vel.
Bloggar | 1.2.2008 | 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þegar ég var á leiðinni heim úr skólanum sá ég skyndilea stóra ferðatösku standa við vegbrúnina, ég ætlaði að ná í hana, en þá sá ég baldur koma á harðaspretti niður götuna og taka töskuna, ég elti baldur hann labba í áttina að löggustöðinnni þannig að ég hætti að elta hann og fór heim. ég var heima í 3 daga að horfa á sjónvarpið og éta pizzu þegar alltíeinu heyrist DINGDONG í bjöllunni ég fór til dyra þar sá ég Baldur standa í dyrunum og með töskuna hann sagði ,,komdu með mér til Dublin á U2 tónleika" ég sagði ,,ok" þá sagði hann ,, palli ,,skvíkí little bits" kemur líka" ég hugsaði með mér að ef ég færi með þá gæti ég náð í töskuna og farið með hana heim, þannig að ég sagði ,,að sjálfsögðu kem ég með". Í flugvélinni bjuggum við til ,,crew" sem heitir Crazy Dogs. þegar við komum til dublin þá lét Baldur okkur báða fá Corvettur sem hann keypti á íslandi og lét flytja til dublin og stendur á Crazy Dogs, hann fékk líka eina. Um leið og við fórum í nýja glæsilega 700 fm 2 húsið hans Baldurs fór ég að hugsa um leið til þess að taka töskuna, ég ákvað bara að drepa þá báða og alla 70 lifverðina hans baldurs og taka töskuna og fara heim, en ég gleymdi því að við djömmuðum svo mikið að ég hafði ekki tíma til þess.
KV. Hjörtur
Bloggar | 1.2.2008 | 11:45 (breytt kl. 12:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Íslenskuverkefni
Íslenskuverkefni
Ég var ein heima, var komin í rúmið og hafði látið svaladyrnar sanda opnar þegar allt í einu kom þessi svakalega vindkviða og þar koma þessi svart klæddi maður hann var með svarta skikkju og með svarta grímu með svona oddhvössum eyrum ég var ekki alveg að kveikja á því hver þetta væri en svo á endanum sagði hann hver hann var ;)Og eftir það þá vorum við bara að spjalla og fengum okkur tebolla . Við ræddum um allt á milli himins og jarðar !
Hann vildi endilega vita hvernig maður gæti heillað stúlkuna sem maður væri alveg að deyja yfir ? En ég veit ekki sko , sagði honum bara að hann ætti kannski að tala við hana fyrst og eitthvað , hann ætti til dæmis að gera fyrsta skrefið .... en svo eru strákar náttúrulega alveg óttalegar skræfur er það ekki J ?Og kannski að bjóða henni að gera eitthvað sem væri gaman í bíó eða orfa á mynd saman heima hjá honum eða eitthvað ?! En hann sagðist ekki þora því, þá sagði ég honum bara að koma sér í þá stöðu að hann væri búinn að tala við hana svolítið lengi og væri allt í lagi með að bjóða henni eitthvað eða allavagana vera ekki svona smeikur með að bjóða henni eitthvað ! En ég veit náttúrulega ekki hvernig gella þetta er þannig ég sagði honum bara að gera það sem honum langaði eða leist á ! en bara ekki vera of grófur í öllu ! Eftir þetta stóra spjalla okkar þá sagðist hann vera svo pottþéttur á öllu þessu og væri bara hæst ánægður með hvað hann ætlaði að gera og hann sagðist ættla að gera eitthvað í þessu á morgunn og þá var ég mjög ánægð með hann og frá þessu kvöldi þá hef ég kallað hann hetjuna mína !. Eruð þið ekki sammála mér stelpur ? . :D
Endir.
-hugrún haralds. :*
Bloggar | 1.2.2008 | 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta skiptið sem ég fór til Bandaríkjanna það var síðastliðinn nóvember ég fór með pabba mínum og konunni hans það var geðveikt gaman. Fyrst fórum við að hitta frænda minn og fjölskylduna hans sem búa í Virginia Beach. Síðan daginn eftir fórum við til Washington D.C að skoða. Við skoðuðum Washington minnismerkið, Lincon minnismerkið, World War 2 minnismerkið og mörg fleiri minnismerki svo sem Víetnam minnismerkið og ég nenni ekki að segja fleiri. Síðan fórum við í búðir það var nokkuð gaman. Og síðan fór ég með pabba mínum að kaupa keilukúlu og keilukúlutösku það var geðveikt vesen. En það tók nokkra daga að bora kúlunna, en þegar það var búið að bora kúluna hjá mér og pabba mínum þá fórum við að spila keilu ég rústaði pabba það var gaman. En versti parturinn við ferðinna var að ég varð veikur.
Kristófer Arnar.
Bloggar | 1.2.2008 | 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í fyrsta skiptið sem ég.... keyrði bíl var þegar ég var 5 ára (fékk bara að stýra ) enn þegar ég var 10 ára fékk eg að keyra í alvörunni
Það var mjög gaman og hef verið að keyra svona inná milli nú frá til
svo fór ég að keyra vélsleða og Fjorhjól með frænda mínum og svo fór ég að hjálpa honum að keyra með Sleðanna aftan á pallbíl.
það var alltaf gaman að keyra ________________________________________________________________________________
2nd Saga : fyrsta skiptið sem ég fór til útlanda fór ég til Taihlands og var í flugvél í um 16 klukkutíma, þegar við vorum það fórum við að heimsækja sumarbústað Kóngsins, þar voru um 1600 munkar út um ALLT! það var líka nógu heitt þarna í veðri að þegar maður vaknaþi voru um +36°c hiti og þegar leið á daginn komst það upp í +43°c hita það var líka þegar maður kom heim var manni ógeðslega kallt því maður var orðinn svo vanur hitanum og frá að ég kom heim var ég ekki buinn að sofa í 17 klukkutíma og vakti til enda í 36 klukkutíma!
Ég er farinn í Bili! Kv. Bjarni Kristinn
Bloggar | 1.2.2008 | 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í fyrsta skiptið sem ég hef sofnað, var ég einn heima, var kominn uppí rúm og hafði látið svaladyrnar standa opnar þegar það flaug fugl inn. Það var amerískur hræfugl. Hann hafði hvítar fjaðrir en svartan haus. Hann var mjög tignarlegur, þar sem hann stóð og velti fyrir sér hvar hann var. Ég stóð upp og ætlaði að opna hurðina. Ef ég hefði vitað hvað það var sem beið fyrir innan dyrnar hefði ég aldrei opnað. Þarna voru öll dýr heimsins fyrirkominn. Allt frá fílum til maura. Þetta var eins og fuglabjarg. Þegar ég vaknaði næsta morgun beið mín algjör skítahrúga. Skítur frá öllum dýrunum sum skitu meinar en önnur. En mesta skítahrúgan var frá fílnum því hann hafði étið öll húsgögnin. Ég þurfti að þrífa upp allan þennan skít aleinn því mamma og pabbi voru ekki heima. En ég gerði það ekki því að ég nennti því ekki. Í staðinn skeit ég meira á gólfið Þegar mamma og pabbi komu heim var ég farinn til vinar mins sem heitir Gemlishemli. Hann er pólskur og reykir einn malboro pakka á dag. Þegar ég kom heim var allur skítur horfinn. Mamma og pabbi lágu víst á beit allan daginn að éta hann
Já þetta voru mínir tveir dagar :D
Bloggar | 1.2.2008 | 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þegar eg vaknaði þennan morgunnin biðu mín 2 menn sem litu út eins og þeir væru í c.i.a. Þeir biðu ekki en tóku mig í yfirheirslu til að fá uppúr mér uplýsingar um vin minn sem var að selja dóp fyrir mafíuna. Þegar þeir voru búinir að yfirheyra mig LENGI en fá ekkert uppúr mér létu þeir mig lausan. ég fór nátúrulega beint til vinar míns og sagði honum að fara úr bænum. við fórum úr bænum til akraness því þektum marga þar. þar földum við okkur í nokrar vikur. en svo kom það að þeir fundu okkur svo við fórum enþá lengra í burtu alla leið til tálknafjarðar sem er lítið 300 manna fiski þorp á vestfjörðum og erum við hérna enþá í dag í felum 2 árum eftir yfirheyrslurnar og erum að finna nýja meðlimi í mafíuna.
Unnar
Bloggar | 1.2.2008 | 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þegar ég ætlaði að fara af stað í skólann var bíllinn horfinn. Ég var bara, hey vó hvað er að ske maggi T? En þá sá ég "hann". það stóð blár maður u.m.þ.b 8 metra frá bílastæði Jóns gamla. En það sem ég vissi ekki þá að þetta var bara tálsýn sem að Jón gerði til þess að blekkja mig svo hann gæti hlaupið, en ég veit það alveg pott þétt núna ;O. Er ég horfði á bláa manninn standa þarna hugsaði ég "mikið svakalega er hann blár. kannski of blár,,. Það var þá sem ég fattaði alheims samsærið en það versta við það var að jón gamli var höfuðpaurinn í þeirri aðgerð þannig að ég tók upp vasaljósið mitt og hljóp eins og ég gat. Hann tók flugvél til Bandaríkjanna en það stoppaði mig nottlega ekki. Ég elti hann í hvíta húsið þar sem hann var að kasta strokleðri í Bush, vonandi að hann myndi segja upp. En viti menn, hann gafst ekki upp og sendi lífverðina sína á Jón og hljóp í skjól. Eftir 10 mínútna skot bardaga/strokleðurs kast heyrðist kallað " YOSHITSUNE NAKAMO,, sem var galdur til þess að eyða öllum Lífvörðum í landinu. Með enga aðra valkosti þurfti forsetinn að segja upp en þá gat ég ekki horft á lengur. Ég hoppaði á Jón og rotaði hann í einu massífu höggi. Síðan sló ég Bush utan undir og sagði honum að halda áfram að vera ömurlegur forseti. Sigurglaður labbaði ég heim til mín. Og þá sá ég bestu sjón sem ég hafði séð í allan dag, bílinn minn.
ENDIR
takk fyrir mig
Gísli RRRRR AKA "sá lélegasti,,
Bloggar | 1.2.2008 | 10:55 (breytt kl. 10:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta skiptið sem ég sparkaði í dverg var um jólin ´99. Hann var dulbúinn sem álfur jólasveinsins en ég sá að hann var ekki raunverulegur álfur. Hann var með gervi eyru og gat ekki dansað almennilega. Þá varð ég reiður. Ég arkaði að honum og greip í hann. Hann byrjaði að öskra eitthvað en ég sparkaði aðeins í hann, þá öskraði hann ekkert meira. Eftir þessa frábæru lífsreynslu hefur lífið mitt verið miklu betra. Ég mæli með því að næst þegar þið sjáið dverg þá endilega gefa honum smá spark, ekkert til að meiða hann en bara svona til að prófa.
Teitur.
Bloggar | 1.2.2008 | 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsta skiptið sem ég fór til Spánar, það var frábært. Ég fór með Baldvini og fjölskyldunni hans, og auðvitað mömmu minni. við fórum til Calpe sem var frekar góður staður, vorum 10metra frá ströndinni og gistum á hóteli með sundlaug og voru margir íslendingar á þessu hóteli. Vorum ekki með bíl þannig við þurftum að labba út í búð og þurftum að labba til baka með matvörurnar, vanalega þurfti ég að labba með 8 lítra af vatni sem var mjög þungt. Fórum í sundlaugargarð og skemmtigarð, man ekki hvað sundlaugargarðurinn heitir en skemmtigarðurinn hét Terramitica (veit ekki alveg hvernig maður skrifar það en held að þetta er skrifað svona. En vorum bara í um það bil 10 klukkutíma í skemmtigarðinum af því það var svo langt að fara í hann og heim. En allavega, það var fall turn, rússíbani, leiktæki, tölvu salur með helling af drasl tölvum og svo var bara helling af fleiri leiktækum, það var líka veitinga staður þarna, svo fólkið sem vann þar sýndi sýningu sem var samt svona söngleikur eiginlega svo fórum við bara heim. Svo sundlaugargarðurinn sem var geggjað flottur, það voru svo margar rennubrautir og svo sá ég flugu sem leit alveg út eins og drekafluga , ég varð frekar hræddur en hún gerði samt ekkert nema að fljúga og svo fór hún. Svo fengum við okkur svona donut hring sem maður sat í og renndi sér, þetta var gaman. Aldrei neitt skemmtilegt í sjónvarpinu nema C.S.I Miami sem var samt á spænsku, það nennir enginn að horfa á það á spænsku því það er glatað en það var ekkert annað að gera. Frænka mín fékk sólasting og varð veik í kanski 5 daga eða eithvað svoleiðis, langt síðan ég fór þannig man ekki eftir öllu sem gerðist en þetta var frábærð ferð og fer aftur til útlanda á þessu ári, fer til Spánar, reyndar Kanareyja.
Kv: Kristófer Ernir
Bloggar | 1.2.2008 | 10:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar