ég heyrði einhver læti frammi, held að það hafi verið inní eldhúsi. Ég varð svolítið smeyk þannig að ég vildi kanna hvað var í gangi, ég fór fram og inní eldhús en þá var gardínan bara að sveiflast til og frá því það var alveg galopinn glugginn, ég lokaði glugganum og opnaði ísskápinn náði í kókómjólk og labbaði inní herbergi en þegar ég var alveg að verða komin sá ég að svala dyrnar voru opnar uppá gátt og það var ljós inní herbergi. Ég var alveg viss um að ég hafði ekki kveikt ljósið. Ég hljóp inná baðherbergi og læsti mig inni dauðhrædd um að það væri einhver að brjótast inn. Ég reyndi að láta sem minnst heyrast í mér, og hlustaði við dyrnar hvort að það væri einhver hreyfing frammi. Þá heyrði ég það að einhver var að labba frammi, og manneskjan var ekkert að fara varlega, heldur heyrði ég að hann labbaði asnalega, og heyrði að hann rakst utan í alla veggina. Hræðslan var aðeins farin að hverfa þannig að ég gægðist aðeins út um hurðina og sá að þetta var hann Siggi í næsta húsi, hann var fullur og hafði greinilega farið í vitlaust hús, ég hló bara, hann var alveg meinlaus þegar hann hafði fengið sér í glas. Ég fór til Sigga, sagði honum að setjast í sófann á meðan ég hringdi í Elsu, konuna hans, hún var alveg miður sín, og ösku reið út í kallinn sinn að hafa gert þetta. Stuttu seinna kom hún og hún húðskammaði hann, ég var ekkert mikið að hlusta á þau, en heyrði að hún var að eitthvað að tala um skilnað. Ég vona að það gangi ekki eftir. Hann er mjög fínn þegar hann er ekki að drekka. Þótt hann geri það aðeins of oft.
Allavega, ég lokaði svaladyrunum, og lagðist uppí rúm og steinsofnaði.
Bloggar | 1.2.2008 | 09:30 (breytt kl. 09:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 1.2.2008 | 09:20 (breytt kl. 09:47) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef persónulega gaman af íslendingasögunum. Ég las margar þeirra í 5.bekk en hætti þegar ég var farin að hugsa óhugnalega mikið á forn-íslensku
En ef maður hefur ekki áhuga á þeim þá lærir maður ekkert af þessum tímum og þetta verður ekkert nema hellingur af gagnslausum upplýsingum sem verða aldrei notaðar.
En mér finnst gaman að vita að ég sé komin af víkingum og að geta rakið ættir til þeirra á meðan ég les sögurnar um þá fremja hverja hetjudáðina(?) á fætur annari og höggva mann og annan. (t.d er Þórdís Súrrsdóttir langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa,langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa, langa amma mín.) en forn íslenska er ekki mikið ólíkari nútíma íslensku en þetta óskiljanlega bloggmál sem er að mínu mati endanleg sönnun að mannkynið sé á leiðini til helvítis.
yfir og út.
Bloggar | 25.1.2008 | 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mér finnst þær merkilegar. Og ég er ekkert á móti því að krakkar fái að fræðast um forfeður sína í gamla daga, ef þeir hefðu ekki verið til, hvar værum við þá núna ?
Og kjaftæðið um að þetta gagnist okkur ekkert í framtíðinni, hættið að væla.
Það er bara gaman að hlusta á sögur úr fortíðinni um fólkið í torfhúsunum og víkingarnir drápu fullt af fólki og Gísla súrsson og það :D
Hvað eru þið líka að væla þegar krakkar í dag, eyða sem mestum tíma sínum í tölvunni, horfandi á sjónvarpið eigandi ipod og fullt af drasli þegar krakkarnir í gamla daga léku sér bara með kjálka úr kindum.
þetta er fræðandi og líka bara þroskandi fyrir heilann :)
og sumir veittu nú ekki af smá af þroskun.
karó
Bloggar | 25.1.2008 | 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 25.1.2008 | 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mitt mat á að lesa og læra fornsögur í grunnskólum. Þótt að það er erfitt að skilja fornsögur, af því að þær eru skrifaðar á forn íslensku og er allt öðruvísi heldur en við erum vön að lesa og tala, þá er samt nauðsynlegt að vita eitthvað um landið og landnámið. Mér finnst samt að það á ekki að kenna fleiri en eina sögu í hverjum bekk. Þannig að ég er ekki á móti þessum fornsögum, en það væri betra ef að þær væru skiljanlegri og á þannig máli sem við höfum lært síðan að við fæddums.
Bloggar | 25.1.2008 | 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jájá, nema bara eina vitið í þessum sögum er að ættartréð er rétt og kannski boðskapurinn en það er bara ekkert nema dálítil leiðindi að vita hvaðan Hrafnkell er ættaður eða Gísli Súrsson. En mér finnst aðalmálið að láta 3 bekk lesa þessar sögur og þá bara vera búinn að þessu í unglingadeildinni. Því yngri sem nemandinn er því meira étur hann þetta í sig:)
-Ólöf
Bloggar | 25.1.2008 | 12:14 (breytt kl. 12:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
í dag á eg að skrifa um skoðun mína á fornsögum í grunnskólanámi og kennslu.
Mér finnst persónulega séð, alveg fínt að vera með fornsögur í skóla, það segjir mest til um sögu íslands. Þá lærir maður meira um Ísland, landið okkar. Í staðin fyrir að vita bara, að Ísland er eyja, langt i burtu. Já mer finnst að það ætti að kenna fornsögur í skóla.
Takk. Páll Sindri
Bloggar | 25.1.2008 | 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Yess!!
Hénna ég á að skrifa um mína skoðun á fornsögum... ég hef náttúrulega ekki sömu skoðun og allir aðrir gagnvart fornsögum. Mér finnst þær stundum fínar skomm það fer bara algerlega eftir því hvaða fornsögum við erum að lesa. Og það skiptir líka máli að hún sé skemmtileg annars nennir engin að lesa hana.
Það væri kannski fínt að krakkar læsu fornsögur, þú veist akkuru ekki, kannski græðir maður á því maður veit ekkert um það. Sumir vilja ekki lesa fornsögur kommon akkuru ekki að læra þetta einu sinni ekki eins og það sé eitthvað mikið mál að lesa Stundum verður maður bara að gera eitthvað í lífinu sem er ekki skemmtilegt það getur ekki allt verið skemmtilegt..
Já við verðum víst að skrifa meira en hef ekki hugmynd um hvað ég á skrifa meira mér verður bara að detta eitthvað í hug. Okei Fornsögur eru skemmtilegar gamlar sögur sem mjög fáir hafa áhuga á að lesa, en því miður hef ég áhuga á að lesa þær okei ég veit að ég er skrítin en fólk er bara mismunandi mér finnst meðal annars rosalega gaman að lesa en þanna er farin
En þetta er mín skoðun á fornsögum!!...
Maríanna
Bloggar | 25.1.2008 | 09:55 (breytt 1.2.2008 kl. 09:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sælir góðir hálsar,..
Viðfangsefnið í bloggheiminum @ brekko9is.blog.is í dag er að skrifa um skoðun sína á fornsögum í grunnskólanámi og kennslu.
Persónulega finnst mér voðalega gaman þegar allir safnast saman og gamla fólkið skiptir sögum af liðnum, og að þeirra sögn 'betri' tímum. Við yngri kynslóðin áttum okkur ekki almennilega á því hvernig var hægt að lifa uppi á þessum tímum, þar sem það var ekkert sjónvarp til, stelpur höfðu ekki rétt á því að fara í skóla heldur aðeins gerast húsmæður á einhverjum lásí bóndabæ, að lifa uppi á tímum stríða og náttúruhamfara og svona mætti lengi telja. Óneitanlega eru þetta áhugaverðar reynslusögur og heimildir sem við fáum beint í æð þegar við hlustum á afa&ömmu láta dæluna ganga um dreifbýlin og hernám Bretanna.
Þess vegna finnst mér þær heimildar sem eru látnar ganga í kennslustundum í formi kennslubóka og fyrirlestra, einnig áhugaverðar og framandi. Frí kennsla um allt á milli himins og jarðar, þar sem lifnaðarhættir forfeðra okkar eru skilgreindir, sagt frá því hvernig jörðin okkar gamla góða og allt þetta varð til og kenningar annarra um þróun heimsins og mannkynsins. Íslensku þjóðsögurnar standa alltaf fyrir sínu í þessum efnum og pólitísku harðindin og deilurnar eru okkur til mikillar mun að læra af og jafnframt virða aðgerðir þeirra sem reyndu að gera litla Íslandið okkar ennþá betra. Til eru mismunandi gerðir fornsagna eins og ég bendi á hér fyrir ofan, en það getur komið uppi á milli nemanda hvað hverjum og einum finnst mest spennandi og skemmtilegast. Þess vegna geta komið upp deilur á milli hvað skal kenna vorum nemendum og erfitt að gera öllum til geðs.
Ég styð eindregið að læra fornsögur í grunnskólanum.
Þegar fólk spyr 'af hverju þurfum við að læra þetta', eða 'þetta er löngu liðin tíð', verðum við að hafa það hugfast að þessir löngu liðnir tímar voru einu sinni að gerast hér og nú, jafn ljóslifandi og nútíminn sem blasir við okkur í dag. Og auðvitað viljum við að okkar og okkari tíð og raunveruleika muna vera minnst, og varðveitast sem geymt en ekki gleymt.
Segi þetta gott í dag, túdilú :)
Aðalbjörg/íslandzfari
Bloggar | 25.1.2008 | 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar