Hver er sinnar gæfu smiður

Hver er sinnar gæfu smiður er þegar þegar maður lærir heima og sá sem gerir ekkert af sér

 

en maður er ekki gæfu smiður að reykja og drekka og allt þetta  

jonni

 

 

Hver er sinnar gæfu smiður

Þetta þíðir að hver stjórnar sjálfum sér og hvað hann gerir. T.d. ef maður lærir vel í skóla og heima þá færðu góðar einkannir en ef maður lærir aldrei heima þá færmaður lélegar einkannir, ef maður æfir íþróttir og æfir og æfir þá nærðu langt en ef maður byrjar að drekka og reykja þá nær maður ekki langt

 

Til eru mörg dæmi um Fólk sem sem voru mjög góðir í skóla og íþróttum og áttu framtíðina fyrir sér en byrjuðu að drekka eða dópa og enduðu í alguru rugli.

þetta er mín túlkum á þessum svo sem ágæta málshætti     kv. sigurjón 


Hver er sinnar gæfu smiður... - Fransi

mér finnst málshátturinn "hver sinnar gæfu smiður" þýða að til dæmis ef þú til dæmis vinnur í einhverri íþrótt þá áttu það skilið því kannski æfðir þig kannski meira en hinir allavega sem ég vill meina er að þú færð það sem þú hefur áorkað.

Það þýðir líka ef þú kannski byrjar að reykja eða drekka þá er þitt val að halda áfram að gera sjálfum þér það.

 hér er einn sem hefur látið gott af sér leiðaWink


Hver er sinnar gæfu smiður

Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa um þennan málshátt en ég segi hér að þetta þýðir að allt sem þú gerir hefur afleiðingar. Eða allt sem þú gerir sem hefur áhrif sjálfan þig gerir þig að manneskjunni. T.d. ef þú ákveður að þú ætlir bara ekkert að læra þá verðurðu lélegur námsmaður. Þetta merkir að þú ræður hvernig þú ert, hvaða manneskja þú ert og hvernig þú stendur þig í lífinu. Allt sem þú gerir stuðlar að því hvernig þú verður á endanum. Hvort þú verður frægur, ríkur, fátækur eða bara meðal maður. Þú ert það sem þú gerir er einfaldasta skýringin á þessum málshætti.

 

Heiðar


Hver er sinnar gæfu smiður

"Hver er sinnar gæfu smiður" sumir hafa velt því fyrir sér hvað þessi málsáttur þýðir en þeir hafa bara aldrei heyrt hann áður, hann útskýrir sig svolítið sjálfan. Það fer eftir því hvað þú gerir, hvað þú kýst að gera og trúa sem veldur því að þú hefur heppni í gegnum lífið og ekki eitthvað sem einhver annar gerir eða að hlutir gerist bara af sjálfum sér.Ef þú gerir eitthvað vont t.d ræna dópa drepa eitthvað svona þá getur það alltaf komið aftur til baka og þú ferð í fangelsi eða verra,ef þú ferð í skóla í mörg ár og lærir eitthvað sem þú vilt gera þá færðu á endanum góða vinnu.

 Svona myndi ég að minnsta kosti túlka þennan málshátt.

 

*Bjargmundur*Sideways

 


hver er sinnar gæfu smiður!

hmmm veit ekki allveg hvað ég á að skrifa hérna því að ég veit voða lítið um þetta hver er sinnar gæfu smiður því að ég er mjög léleg í svona málsáttumHalo  en ég ætla samt að reyna hehe. en ég mundi samt segja að þetta sé rétt og rangt. Því að það er ekkert alltaf manni ekki kenna hvað maður gerir en samt maður vanalega ákveður það sem maður gerir. Þú getur ákveðið hvort þú verður leiðinlegur eða skemmtilegur í dag. þú getur ákveðið hvort þú ætlar að hanga heima í allan dag eða fara út og gera eitthvað af viti.  En ef þú ert að keira á allveg löglegan hátt og þú ert bara að keira og svo kemur einhver sem er kolólöglegur og er að keira alltof hratt og klessir á þig ert þú þá þinn gæfu smiður? mér finnst það ekki í þessu dæmi:S

Kv Margrét=) P.S ég veit ekkert hvað ég er að skrifa um!


Hver er sinnar kæfu smiður ! /Símon

Hver er sinnar gæfu smiður, þýðir einfaldlega að hver smíðar sína eigin gæfu ! Þú gerir hvað sem þú vilt við líf þitt, og ræður hvort það verði gott eða ekki. Þú ferð til dæmis sjálfur að reykja eða drekka, sem er bara þitt val, eða jafnvel útí eiturlyf. Þetta þarf ekkert endilega að fjalla um að reykja og drekka og það kjaftæði, getur alveg lika verið um vinnu og svoleiðis, hvort þú verðir bankastjóri eða hreinsar ræsin :)

 

 


Hver er sinnar gæfu smiður

Hver er sinnar gæfu smiður þýðir maður ræður sínum örlögum sjálfur. T.d. þú ræður sjálfur hvort þú verður atvinnulaus róni í Breiðholtinu. svona eiginlega, ef þú ert bara latur og gerir ekki neitt gætiru endað svona, ÞITT ER VALIÐ ! ÞÚ TEKUR ÁKVÖRÐUNINA ! ÞÚ TEKUR ÞETTA MEÐ TROMPI!


tromp

 

 

 

 

 

 

 

 

GunniAlien


Hver er sinnar gæfu smiður ..........................

Ef ég á að túlka málsháttinn hver er sinnar gæfu smiður á minn hátt þá kemur það hér.

 

Semsagt ég held að þetta þýði að maður verður að gera eitthvað sjálfur til þess að vera hamingjusamur og til þess að hafa gaman af lífinu þarf maður líka að leggja fram fórnir. Og ef þú ætlar að komast í gegnum lífið án þess að gera neitt þá endar það næstum alltaf illa og það er ekki gott. Sem dæmi er mikið um að krakkar sem ætla að komast í gegnum lífið án þess að gera neitt og eiga kannski ríka foreldra þá enda krakkarnir oft bara í eintómi rugli sem enginn vill gera viljandi.

 

En meira hef ég ekki að segja um þennan málshátt.

 

Lárus Beck ;]

monkey



Hver er sinnar gæfu smiður...

 Hvað þýðir það? það þýðir að ef þú gerir eitthvað af þér, þá veistu að þú færð það í bakið.

Eða eins og t.d þú byrjar að dópa, reykja eða drekka, þá ert þú að búa til sjálf/ur þína framtíð. Þess vegna lærir maður að vera skynsamur.

en jææja, kann ekkert að útskýra þetta.

þannig að bæ

 

 

 

ALMA SPEKKAÐU ÞETTA LAG !! ;D 

ef þú sérð það ekki þá ; http://www.youtube.com/watch?v=5-8dhZRfiTw 

 

 ástrós


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband