hver er sinnar gæfu smiður

hver er sinnar gæfu smiður

nokkur dæmi ::

 

  • ef ég vinn mikið fæ ég pening, ég get ekki ætlast til að fá peninginn nema ég vinni fyrir honum
  • ef maður er kurteis við alla, þá oftast fær maður kurteisi til baka
  • ef þú ræðst á einhvern, þá geturu ekki verið hissa ef hann ræðst á þig á móti
  • ef þú lærir vel þá færðu góðar einkunnir og kemst í góðan skóla
  • ef þú kaupir aldrei lottó þá geturu ekki unnið í því, en ef þú kaupir það í hverri viku er líklegra að þú vinnir
  • ef einhver ákveður að hoppa af háum kletti, er mjög líklegt að hann meiði sig, manneskjan getur ekki búist við öðru

flóknara er þetta ekki
 
 
 
salka kveður að þessu sinni
hittumst heil 

Hvað ætla ég að gera um helgina ?

Það er erfitt að segja til um framtíðina, en ég geri mitt besta í að skína ljósi á ráðgátuna sem er : Hvað geri ég um helgina ? Kannski fer ég til Reykjavíkur, kannski verð ég bara heima, kannski fer ég í ferðalag. Hver veit ? Það veit enginn. Ég er núna með kristallskúluna mína góðu sem ég nota í spádómum mínum og núna er viðfangsefnið svo sannarlega krefjandi, ég rýni í stjörnurnar og tala við tunglin. Himinnguðirnir tala tungum og ég tala við anda heimsins og þeir segja...þeir segja....Að ég eigi eftir að vera heima um helgina og hitta vini mína og fleira. Andarnir hafa talað..

 

 

gunnar Alien


Jæja..

Af því ég er búin að blogga um málsháttinn hver er sinnar gæfusmiður!! þannig að ég er svo heppin að ég fæ að blogga um hvað ég ætla að gera um helgina...

Ég fæ heimsókn um helgina einn vinur minn kemur núna með strætó klukkan 10:45 og hann verður kominn eitthvað um 11:15 sc.
Og hann verður hjá mér alla helgina, mig hlakkar ógeðslega mikið til.
Við ætlum bara að vera á Akranesi að chilla  og við ætlum líka að kíkja í sund og svona. Og síðan bara í kvöld erum við pottþétt eftir að horfa á einhverja góða bíómynd og borða fullt af nammi og hafa það notalegt. Förum kannski eitthvað pínu á rútinn á bílnum hjá mömmu og pabba ef mútta mín leyfir það. Og síðan á sunnudaginn þarna þá er kaffi hjá önmu kl. nákvæmlega 3 og ég fer alltfa í kaffið og hann kemur með mér. Síðan fer hann heima til sín seinna um sunnudags kvöldið og þegar hann er farin þá verð ég að fara læra fyrir skólann á mánudaginn. Og ég fer auðvitað til hans næstu helgi InLove Þegar ég er búin að læra fer ég bara að lúlla..

Ég er pottþétt eftir að gera eitthvað meira en bara mér dettur ekkert í hug núna þannig að. Síðan þú veist þegar maður er að hugsa þá dettur manni eitthvað sniðugt í hug. En ætla að reyna fá hann til að fara með mér úta labba af því hann er svo latur og nennir ekki að hreyfa sig hehe enda með bílpróf þannig að það kemur manni ekkert á óvart. En ég hef bara ekki hugmynd hva ég á að skirfa meira verð að skrifa eitthvað vegna þess að VIÐ verðum að skrifa á þessari síðu allveg þangað til að tíminn verði búinn. Þannig að mér verður að detta bara eitthvað skemmtilegt í hug bara.
Æi ég finn ekkert þannig ap ég læt þetta bara duga í bili
Heart

Bæjó Maríanna
;*

 


Hvað ætla ég að gera um helgina.. ?

Ég ætla hérna að skrifa aðeins um það hvað ég ætla að gera um helgina vegna þess að ég gat ekki fundið meira að segja um málsháttinn og þá sagði kennarinn mér að ég mætti ekki gera neitt annað en blogga og er núna að láta mig skrifa um hvað ég ætla að gera um helgina.

 

Í dag ætla ég nú bara taka því rólega eftir skóla og fer svo á æfingu á eftir svo í kvöld veit ég nú ekki alveg hvað ég ætli að gera ætli maður farekki bara í Arnardal eða eithvað slíkt. Svo fer ég nú bara heim og kannski horfa á mynd og svona og svo bara að fara að sofa.

 

Á morgun ætla ég að fara til Reykjavíkur ef allt fer eftir áætlun og skoða jakkaföt og svona vegna þess að mig er farið að vanta jakkaföt árshátíðin á föstudaginn í næstu viku og svo er það náttúrulega útskriftin og fleira og þá er gott að eiga jakkaföt til þess að vera í. Svo kannski fer maður í fermingar eða eithvað slíkt.

 

Sunnudagurinn veður örugglega bara mjög svipaður og allir aðrir sunnudagar soooooofa og svo bara chilla allann daginn kannski fara út að keyra í æfingarakstrinum :D hver veit...

Annað veit ég ekki ekki vonandi verður þetta bara skemmtileg helgi .. :) en kveð að sinni vonandi að kennarinn fari að hleypa manni út  [:

Lárus Beck

Fat.Kid.Funny.Shirt


Það sem ég ætla að gera um helgina.

Ég ætla að gera mjög lítið um helgina. Kannski fer ég á boxæfingu á sunnudaginn ef ég verð ekki sofandi. Ég ætla bara að slappa af og horfa kannski á nokkrar myndir og einhvað þannig. Því að um helgar á maður að sofa út. Ég veit samt ekki kannski kíkir maður einhvað út. En ég kíki kannski í ræktina. Það er aldrei að vita hvað maður gerir.

 

Heiðar letidýr.


Helgin.../ Símon

Á helginni ætla ég VONANDI að fara til Reykjavíkur og vera hjá besta vini mínum :) Annars verð ég hérna á Akranesi sem mér finnst hundleiðinlegt, drepleiðast og rotnandi. Ef ég fer til Reykjavíkur þá munum við bara vera eitthvað chillandi, hitta vini og líka vera að spila. Ef ég verð hér hinsvegar neyðist ég bara til að hanga heima, verð líklegast vakandi allar nætur og spilandi á gítar, og á daginn verð ég örugglega með Gunnari :)

 128686_logo

 Fínasta band ! hlusta ekkert mikið á þá, en samt svona smá :)


hvað á að gera um helgina ?

Ég ætla örugglega bara skella mér til Hafnarfjarðar og hitta einhverja vini mína þar og bara eitthvað að flippa...

Kv. HinniWizard

Hver er sinnar gæfusmiður

Ég veit ekki hvernig ég á að túlka þennan málshátt en svona kemur þetta út.

 

 

Til að verða glaður og heppinn í lífinu verður maður að vinna fyrir því með því að hugsa vel um sig, reykja ekki eða drekka, ekki borða alltaf óhollann mat, stunda líkamsrækt, gera ekki of hættulega hluti eins og keyra og vera ekki með belti eða keyra of hratt, ekki leika sér ekki með eld.

 

Ég veit ekki um mikið fleiri hluti, ég ætla að láta þetta duga í dag.

Jóhann Bjarni Devil


Hver er sinnar gæfusmiður

Hver er sinnar gæfusmiður þýðir bara að þú býr þér til þína eigin gæfu er samt ekki 100% viss. 
Þú stjórnar náttúrulega hvað þú gerir við lífið þitt, þú ræður hvort u sért heppinn eða ekki.
Það gerir hálfpartinn með því að passa uppá sjálfan þig. Mér finnst t.d. ef maður er í dópinu þá er maður t.d. ekkert heppin, og ef maður er í einhverju rugli. Maður er meira heppin ef maður er ekki í ruglinu, þeir sem eiga ekki mikla peninga og er í þessu rugli skulda kannski dáldið mikið og það er ekki gott það gæti endað að manneskjan barin/n í klessu. Mér finnst þetta til dæmis dæmi um ''hver er sinnar gæfusmiður''

Veit ekkert hvort þetta tengist hver er sinnar gæfusmiður en ætla samt að setja þetta hérna.
Þarna ef u stendur þig vel í skólanum mætir og kemur alltaf á réttum tíma og skilar heimavinnu og fær fínar einkunnir þá er maður að byggja upp gæfuna eða eitthvað.

En maður ræður samt eiginlega ekki hver gæfa manns verðu, mér finnst það að engin geti það,
maður getur bara ekki ráðið hvort maður sé heppin eða ekki... 

 

Bless í bili

Maríanna 

 

 


Hver er sinn gæfu smiður- (Nína)

Hver er sinn gæfu smiður, Merkir það að þú hefur sjálf/ur komið í þér eitthvað gott eða slæmt, til dæmis ef þú ert dugleg/ur að læra eða vinna þá færðu eitthvað gott í staðinn sem þú hefur unnið þér inn. Þú velur og ræður hvað þú geri, það ert þú sem velur hvort þú vilt vinna í fiski alla þína ævi eða verið í góðri vinnu og fá góð laun þetta er allt á þínu valdi um hvað þú vilt gera í lífinu. Ef þú villt að eitthvað gott gerist verður að vinna fyrir því. Þú getur líka valið um það að vinna ekki neitt en þá endar þú bara á því að eiga ekkert og lendir bara á götunni 

þetta er mín lýsing á þessum málshætti, svona túlka ég m álsáttin.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband