Stína Eplakaka

Ég þekki stúlku sem heitir Stína Eplakaka og hún er krossfiskur. Hún átti heima í sjónum áður en ég og Bjarni fundum hana í fjöru týndra drauma og rusli. Hún átti fínt hús á stað í sjóinum sem heitir Bikíní Botnar. Hún bjó með kærastanum Pétri sínum undir steini, við hliðina á Sigmari. Sigmar er alltaf að spila á klarínettið sitt og hann veit ekki hvað hann er ömurlegur. En annars, eftir seinni heimsstyrjuöldina þá ákvað Sigmar að deyja og hann Pétur ákvað að springa úr leiðindum daginn eftir. Stína varð mjög leið og flutti til Stefáns sem býr í Nýju York. Þegar hún kom heim til hans þá fattaði hún að það var ekkert sem hét Nýja York þannig að öll skiltin voru að ljúga að henni. H'un ákvað að fara til Sjónvarps Verslunarinnar Jónasar til að fá svör. Sjónvarpss gaurinn átti bara ekki orð og henti henni til Frakklands. Hún ákvað að eiga heima þar og lifa á steinum sem fólk kastar í sjóinn þann sjönda desember. Það gekk vel en bara þangað til Jónatann hætti að framleiða steina og þá þurfti hún að flytja til sjós aftur. Það gekk ekkert sérstaklega því að það voru engar eyjur eftir til að búa á því að hann Sigmar sprakk svo hátt að allar eyjurnar dóu úr Dislexíu. Hún ákvað því að búa sér til eyju sem hún skýrði Gleðieyju. Þar voru helling af geimverum að leika sér með kát bros á vör.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband