Amma mín og afi

Amma mín í Englandi dó áður en ég fæddist en afi minn dó þegar ég var níu ára. Ég held að ég hafi hitt hann sex sinnum eða eitthvað svoleiðis þannig að ég var ekkert mikið að pæla í því þegar hann dó.

Hin amma mín og afi eru enn á lífi og í fullu fjöri. Amma mín er 55 ára og afi minn er að verða 57 ára þann 26. maí. Mér þykir mjög vænt um ömmu mína og afa minn og ég gæti eiginlega ekki ímyndað mér lífið án þeirra.

Amma mín og afi eiga heima á Lækjarmel 1 í Melahverfinu uppí sveit einhversstaðar í Hvalfirðinum. þau eiga fjögur börn og sex barnabörn. Afi minn vinnur á Grundatanga og amma mín er bara að rækta garðin og er með litla verslun með föndurvörum, henni finnst mjög gaman að föndra og alveg sérstaklega að prjóna á mig röndótta vettlinga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband