Nútímahetja

Ef ég myndi velja eina mestu hetju heimsins myndi það ábyggilega verða Lalli. Lalli er alltaf að berjast við ill skrímsli og póstkassa. Einu sinni var ég úti að tjilla og þá kom hann og skallaði mig í ilið. Ég hugsaði að hann væri ábyggilega bara leiður því að frændi hans gerir alltaf grín af hárinu hans sem lætur hann líta út fyrir að vera lykill. Hann frændi hans sem hét Úggalasekkanú var ávalt laggður í einelti af lyklum þannig hann hatar þá mjög mikið. En annars var fjölskyldan hans bara fín því að hann var hetja og elskuðu hann, nema Úggalasekkanú. En ég fór til hans Jóns bónda og lét hann skoða málið, og hann komst að því að brjálaði gaurinn í næsta húsi var að dáleiða hann til að vera fiskur, þannig hann hagaði sér eins og fiskur. Ég varð mjög hissa því að Lalli var alveg bara ónæmur fyrir dáleiðslu. Ég skrapp því heim til hans og ákvað að checka hvað hann avr að borða, og þar sá ég það. Íbúðin hans var að drukkna í smokka umbúðum, sem að allir vita að maður verður mjög næmur fyrir dáleiðslum eftir að hafa étið þá. En hinsvegar er Lalli með mega maga sem gerir hann ónæmann fyrir alveg helling að drasli, þ.á.m smokkum og eplum með skinku. Það fékk mig til að hugsa um alla fiskana sem eru í trjánum, sem minnir mig á ATVIKIÐ. Einn daginn ákvað ég að labba í skóginum sem að allir álfarnir búa í og Mjallhvít. Aldeilis var þetta svalur skógur, það voru kanínur út um allt og eikker álfur sem var alltaf að hnerra var alltaf að leika sér við þær og hló geðveikt mikið í leiðinni. En ég var bara eikkað að tjilla í fossinum og þ´allt í einu fékk ég magó í hausinn. Ég skoðaði þetta mangó og komst að því að það var ekki mangó heldur gulrót sem var í fýlu. Þá ákvað ég að gerast flóðhestur og vinna með gulrætur í hausnum á Jón Eplamanni. Þessar gulrætur voru allar skemmtilegar en allar brögðuðust þær eins og tær sem maður þvær. Lengi skemmti ég mér við að horfa á þær og dreyma um ketti sem að áttu glúggatjöldúr, þangað til að ég sá þessa brjáluðu gulrót sem að á bara helling af köttum með glúúúggatjöldúrum. Ég freistaðist og ætlaði að kaupa 1stk af honum, og hann var viljugur fyrir því og seldi mér kött á 6 dollara. Ég var svo ánægður og ætlaði að monta mig fyrir vinum mínum sem að búa í klettunum. En þegar að þeir horfðu á hann breyttust þeir í apa og lömdu mig með sápukúlum. Þá ákvað ég að hætta að tilbiðja gulrætur. En eins og ég var að segja/skrifa áður en mér var hugsað til gulrótanna, þá man ég að Lalli átti hest sem að afdáleiddi fólk með borðum. Ég hringdi í Lalla og bað hann um að koma ekki á Main-street NYC og koma ekki með hestinn sinn. Auðvitað kom hann og með hestinn af því að öfug-sálfræði verkar á hvern sem er, meira að segja Silju! Fyrst hann var kominn með hestinn gat ég auðveldlega tekið lifrina úr honum og sett á hausinn á mér, en ég varð að stilla mig og gera það ekki. Ég ákvað frekar að gera það rétta og tók bita úr maganum á honum, lamdi hann með honum og að lokum setti hann á hausinn á mér og dansaði eins og drottningin í Frakklandi.

ENDIR

Gískli SeM aÐ eR bArA eInFaLdLeGa BeStUr! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband