Nútímahetja

Hver er hetjan mín? Hetja er einhver sem maður lítur upp til af einhverjum ástæðum. Hvernig persónan er. Lítur maður ekki hetjuaugum á þann sem hefur kostina sem maður hefur ekki sjálfur en þráir þó. Eða hvað ? Kannski lítur maður upp til þeirra sem manni finnst líkastur sjálfum sér en samt betri á einhvern hátt. Hetjan mín er bara hún sjálf og nýtur lífsins. Það er svo einstakt að geta verið maður sjálfur því það er enginn annar maður sjálfur.

 

Hetjan mín myndi vera jarðbundin og hógvær en samt ekki láta valta yfir sig. Hún myndi berjast fyrir og fylgja því sem henni finnst réttlátt en annars halda sig frá vandræðum og heimskulegum, tilgangslausum uppreisnum. Hetjan myndi vera á undan sinni samtíð í hugarfari og þó að hún sé öðruvísi en annað fólk þannig lagað þá ætti það ekki að hræða fólkið heldur heilla það. Hún myndi ekki íþyngja sér með neinum þungbærum hugsunum heldur njóta lífsins.

Hún er á undan sinni samtíð og hugsunarhátturinn er svo einfaldur en um leið þróaður flókinn. Hetjan mín er semsagt ekki til í lifandi lífi. Ekki svo ég hafi einhverja hugmynd um það að minnsta kosti...

Mér dettur þó eina í hug. Það er strákur sem er í rauninni öfugt við það sem ég lýsti fyrir ofan. Hann er mjög einföld persóna en hann er hugrakkur, góður, duglegur, jákvæður og róleg persóna. Hann er eins og hver önnur manneskja en sker sig útúr með einfaldri hugsun sinni sem er svo áberandi, því að hann er bara hann. Hetjan mín er Sómi í Lord Of The Rings.

 

-Margrét Snæfríður


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband