Flestir eiga sér hetjur, hvort sem að það er Superman, einhver íþróttamaður, tónlistarmaður eða bara mamma og pabbi. Hér mun ég skrifa um mínar hetjur og hvernig þær urðu hetjur fyrir mér.
Þegar að ég var aðeins 6 ára sá ég bíómynd með leikara sem hafði mestu áhrif á líf mitt, myndin var Terminator 2: Judgement Day, og leikarinn var Arnold Schwarzenegger. Ég horfði á myndin tvisvar til þrisvar sinnum á dag nánast alla mína æsku og ég hafði sett mér það markmið í lífinu að verða eins og hann, og ég hélt að ég ætti alveg jafn mikla möguleika og hver annar, en árið 2007 komst ég að hræðilega sannleikanum sem ég hafði neitað að trúa...sterar. Arnold hafði ekki náð þessu náttúrulega heldur tók hann inn ólöglega stera til að ná þessum ótrúlega vexti sínum og aldrei myndi ég láta stera gera mig að því sem mig hefur ævilangt langað að verða, frekar myndi ég vilja vera lítill og steralaus heldur en stór steraköggull. Þannig að ég sneri mér að næst besta manninum, Sylvester Stallone, sem hafði tekið að sér hlutverk boxarans Rocky Balboa. Þessa mynd dáði ég og dýrkaði en viti menn, hann var líka tekinn með stera! Þannig nú var ég í klemmu, hver annar er hetja? En ef að maður lítur yfir þessar svo kölluðu hetjur sem við viljum svo mikið verða, eru þær eitthvað sérstakar. Nánast allir eru á fíkniefnum eða eru alkahólistar, steranotendur eða gera eitthvað hneykslanlegt sem kemur á forsíður allra slúðurblaða. Viljum við virkilega móta líf okkar eftir þessu? Allavega ekki ég. En ekki er hægt að vera án einhvers sem maður lítur upp til, en enginn hefur jafn mikil áhrif á mig og Arnold, þannig að ég er bara með nokkrar smáhetjur eins og Bruce Lee.
En ef ég myndi líta framhjá öllu því ranga við hetjurnar mínar myndu þær vera Arnold Schwarzenegger og Jón Páll. Þrátt fyrir að hafa drepið sig á steranotkun kemst Jón Páll á lista yfir hina miklu í mínu lífi.
Edward Ingi Torfason
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.