nútímahetja

Það eiga allir sína eigin persónulega hetju, ofurhetjur sem hafa bjargað lífi fólks og gert margt gott og gert það eftirminnilegt einhverjar manneskjur sem geta flogið og hafa einhvern ofurmátt.

 

Mín hetja er afi minn hann Reynir af því að mér finnst hann rosalega svalur náungi. Hann er hetjan mín vegna þess að hann bjó til mömmu og hann var saxafónleikari í hljómsveitinni Dúmbó og Steini. Hann er mjög fyndinn og það er alltaf gaman í kringum hann. Þó hann hefur ekki gert margt merkilegt í lífinu eða ekki mikið sem ég veit af en hann hefur alltaf verið rosalega hress, fyndinn og skemmtilegur.

 

Mér finnst afi vera geðveikt svalur. Hann er með svona skalla og spilar á saxafón og það er sko geðveikt svalt finnst mér. Ég er mjög stolt af því að vera barnabarn hans og ég man eftir því að þegar ég var lítil sagði hann mér að hann kunni ekki litalagið : gulur, rauður... og stafrófið og mér fannst það alltaf svo fyndið. Hann er hetjan mín af því að ég vil verða eins og hann af því hann er svalur saxafónleikari og ég er svo stolt af honum.

 

Hetjur þurfa ekki að vera með ofurmátt svo þær geta verið hetjur einhvers. Þó afi minn hljómi engin hetjudáð en þá er afi minn besti afi í heimi.

 

kv. óla bóla var að róla :D 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband