Það er hægt að skrifa um marga menn í þessu. Til dæmis menn í sögunni eins og Martin Luther King. Svo væri alveg hægt að skrifa um íþróttamenn en hvað hafa íþróttamenn gert til að veita einhverjum innblástur. En ég ætla að skrifa um tónlistarmann sem að væri ekkert merkilegt nema hvað að hann er einhentur trommari.
Maðurinn sem ég ætla að skrifa um heitir Rick Allen og er trymbill hjá rokk hljómsveitinni Def Leppard. Það er hægt að segja um þennan mann að hann gæti veitt flestum tónlistamönnum innblástur. Hann er einn af þessum tónlistar mönnum sem að lætur ekkert buga sig og ég ætla að vera svo djarfur að líkja honum við Ray Charles og Stevie Wonder. Hann er einn af þeim mönnum sem að segja að ef að þú dettur af baki þá áttu að fara strax aftur upp á hestinn. Það voru sorgartíðindi fyrir aðdáendur Def Leppard þegar það fréttist að trymbillin Rick Allen hefði lent í bílslysi og hefði misst handlegginn . En beint eftir bílslysið fór hann að spila á trommur einhentur á sjúkrahúsinu og allir voru rosalega hissa um að hann gæti spilað á trommur eftir að hafa misst annan handlegginn. En svo eftir smá þjálfun var hann orðinn góður í að spila einhentur. En hann hefur sérstakt kerfi á trommunum núna að hann getur notað fæturna til að aðstoða.
En það eru margir merkismenn sem væri hægt að skrifa um en ég valdi Rick Allen því að hann er frábær tónlistarmaður og mikill merkismaður. Þó að mörgum öðrum þyki margir aðrir menn merkilegri er Rick Allen í persónulegu uppáhaldi hjá mér og mér finnst fáir merkilegri.
Heiðar kveður
Flokkur: Bloggar | 18.4.2008 | 09:56 (breytt kl. 09:56) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.