Hetja er mjög stórt orð og því er erfitt að finna sér alvöru nútímahetju en hérna ætla ég akkurat að reyna það og vonandi að þið hafið gaman af.
Hetjur hafa alltaf verið til síðan sautjánhundruð og súrkál. Ég held að nú til dags sé samt meira um að fólk sé bara jafnt og þess vegna er mikið erfiðara að finna sér eina hetju nú til dags heldur en í gamla daga. En persónulega er mín hetja Donald Trump vegna þess að hann fór úr því að vera bara meðal maður yfir í það að vera einn ríkasti maður heims. Hann á stærsta byggingarfyrirtækið í Bandaríkjunum og svo á hann hellinga af fleiri litlum fyrirtækjum.
Hann er líka með sinn eiginn raunveruleikaþátt þar sem hann lætur fólk vinna fyrir sig og þeir sem standa sig illa verða reknir. Sá sem að vinnur keppnina fær vinnu hjá Trump og helling af öðrum verðlaunum.
Donald Trump er mjög góður maður líka og gefur alveg helling til góðgerðarmála. Maður sem kemur úr meðalmennskunni og verður svona ríkur hann kann miklu betur að meta það og þess vegna er hann svona góður í því sem hann gerir.
Ég er semagt þeirrar skoðunar að Donald Trump sé ein af nútímahetjunum og gangi honum bara vel.
Lárus Beck.
Flokkur: Bloggar | 18.4.2008 | 09:48 (breytt kl. 09:49) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.