Hugtakið nútímahetja er skilgreint á mismunandi vegu, hjá mismunandi fólki. Litlu börnin eiga það til að nefna fyrst Súperman eða aðrar yfirnáttúrulegar teiknimyndafígúrur en eldra fólkið hallast meira út í að hylla alls konar efnilega pólitíkusa, kóngafólk eða e.t.v. einhvern sem þeim þykir vænst um. Það er sama hvernig þetta hugtak er skilgreint, því við getum öll verið sammála um að þetta eru manneskjur sem snerta líf þitt á einhvern hátt, gegna veigamiklu hlutverki og eiga sess í huga þínum og hjarta.
Þegar ég hugsa til nútímahetju, kemur fyrst upp í huga mér manneskja sem hefur reynst samfélaginu vel með einstökum kærleika, hugrekki og hjálpsemi. Þessum titli fylgir mikil ábyrgð og ég er svo heppin að hafa kynnst manneskju sem axlar þá ábyrgð með prýði. Það er hún móðir mín.
Alveg frá barnæsku hefur hún verið mikill dugnaðarforkur og orkubolti í sínu daglega lífi. Hún fæddist í Súgandafirði að Vestfjörðum árið '66 þar sem hún lifði í faðmi foreldra sinna sem yngsta barnið af þeim 5 systkinunum. Henni gekk alltaf vel í skóla og á mínum aldri var hún að vinna í fiskinum frá eldsnemma að morgni til seint á kvöldin, og nýtti hádegishléið í að dreifa póstinum um allan bæ!
Hún kynntist pabba um tvítugt og með tímanum myndaðist þessi myndarlegi krakkaskari, fyrst Eva Sigurbjörg, ég 3 árum síðar og síðan tvíburarbræðurnir mínir, Jóhannes&Steinn, 2 árum seinna. Mamma sjá um okkur börnin heima á meðan pabbi vann á næturvakt til að halda fjölskyldunni gangandi, og þessar aðstæður reyndust svolítið erfiðar á tímum.
Við fluttumst á milli staða, þ.e. frá Reykjavík til Raufarhafnar og þaðan til Akraness, og höfum við búið hérna í um 8 ár. Mamma nældi sér þarna síðan í góðar vinnur og gekk afbragðsvel í þeim öllum. Núna vinnur hún Í Samtökum Atvinnulífsins í Reykjavík, er formaður skólanefndar og gengur í Sjálfstæðisflokk Akraness. Auk þess er hún húsmóðir heimilisins og er alltaf til taks fyrir okkur fjölskylduna sama hvað:)
Ég tel að við hljótum öll að eiga okkur einhvers konar nútímahetju, yfirnáttúrulega eða ekki. Að það sé einhver til staðar sem við lítum upp til og drögum dáð af, og reynum jafnvel að breyta okkur sjálfum og bæta til að líkjast viðkomandi.
Takk fyrir mig í bili.. Aðalbjörg Þorkelsdóttir
Flokkur: Bloggar | 25.4.2008 | 00:58 (breytt kl. 00:59) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar