Nútímahetjur

Hér mun ég skrifa um persónu/persónur sem mér á að finnast vera nútímahetjur. Þær eru margar og mismunandi, ég ætla að koma með mitt álit.

Það eru til margar skýringar á hetjum, persónulegar hetjur og svo almennar hetjur. Dæmi um almennar hetjur er til dæmis Martin Luther king, Che Guevara, Jón Sigurðsson og kannski superman? En hvernig geta þeir verið nútímahetjur þegar þeir voru uppi fyrir langa löngu?
Mínar persónulegu hetjur eru Quentin Tarantino, Stanley Kubrick og David Fincher, þetta eru mínir uppáhalds leikstjórar sem hafa gert mörg meistaraverk að mínu mati, sem gerir þá að mínum hetjum, því ég lýt upp til þeirra. Reyndar er Stanley Kubrick ekki á lífi lengur, þannig hann telst varla sem nútímahetja. Svo lýt ég líka nokkuð mikið upp til góðra tónlistarmanna, eins og til dæmis The smashing pumpkins, Foo fighters, System of a down og Evanescence, samt eiga þau mörg lög sem þau gerðu fyrir 20 árum en ekki núna í nútímanum.

Niðurstaðar er að mér finnst allir þessir sem ég taldi upp þarna vera hetjur - núna - mér fannst það í gær, finnst það í dag og mun finnast það. Nútíminn er eitthvað sem gerist núna þannig já þeir eru greinilega mínar nútímahetjur þótt þeir gerðu alla þessa góðu hluti fyrir löngu.

salka kveður að þessu sinni
hittumst heil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband