Páskafríið

Jæja, þá er maður kominn úr þessari frelsun sem kallast Páskafrí. Ef einhver myndi spyrja mig hvað ég gerði í páskafríinu þá myndin ég svara, "spurðu mig frekar hvað geri ég ekki,, en ég geri ekki slíkt á blog síður. Er ég arrævaði heim til mín eftir síðasta skóladaginn sá ég fuglinn. Ég reyndi að flýja en eins og allir vita, ENGINN FLÝR FUGLINN! Hann fór nottlega beint á pleisið sem kallast "ninja temple of doomakola". Þegar Doomakola sá mig hrækti hann á mig og dansaði dans hinna dauðu. Um leið og hann endaði dansinn með dans bragði aldarinnar (sem allir ættu að vita hvað er) réðust hundruðir beinagrinda á mig og byrjuðu að rífa eyrun af mér. En allir góðir stríðskappar fara ekki að heiman án eyrnavarnar sokkum. En því miður voru þær frekar tapsárar þannig þær kærðu mig og ég þurfti að borga þeim nokkrar krónur í skaðabætur fyrir "false advertising"Frown. Fullur af brjálæði hoppaði ég á bak lama dýrs og flúði heim. Þetta var auðvitað ekki aumingja skapur í mér, ég þurfti vopn og þannig dót. Ég tók helling af drasli sem ég fann í apótekinu. Enginn nennti að hjálpa mér að drepa Doomakola þanig ég flaug sóló. Mættur í á pleieieieieisið með vopn og allt saman, tók ég upp leynivopnið sem var á gólfi keisarans í Frakklandi. Frakkland var nottlega á móti því að ég barðist við Doomakola því þeir trúðu ekki að ég gæti drepið hann (helv aumingjar >=( ). Tíu sekúndum frá bardaga fattaði ég að Doomakola var of sterkur fyrir einn mann (þó að hann sé jafn svalur og ég) þannig ég flúði aftur, en í þetta skipti til bandaríkjanna. Þeir voru of mikið drukknandi í offitu til að hjálpa mér þannig ég fór til hollywood til að reyna að fá Chuck Norris til að hjálpa mér. Mér til gremju fattaði ég að hann er bara ekkert svalur IRL, þannig til að gera langa sögu stutta fékk ég hjálp frá Teit töffara og við alveg stútuðum Doomakola og frelsuðum heiminn.

 takk fyrir mig

Gísli Rúanúar 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband