Páskafríið mitt!

Ég gerði ekkert svakalega mikið í páskafríinu. Það  var bara mjög rólegt og svona hjá mér. Vinkona mín sem á heima í reykjavík var hjá mér eiginlega allan tímann og við skemmtum okkur mjög vel. Fórum alltaf seint að sofa og fengum oftast að sofa út. Ég fór í 3 fermingar og fékk mjög góðan mat í þeim. Seinasta fermingin sem ég fór í var hjá frænku minni og sú ferming var bara mjög fín í alla staði. við fengum mjög góðan mat og ég þekkti mjög marga þarna og ég hitti í fyrsta skipti tvö yngstu frændsystkini mín annað þeirra fæddist í desember og hitt í janúar og þau eru bæði algjör krútt. Á páskadeginum fór ég með mömmu og pabba upp í sumarbústað hjá frænku minni og dró aðra vinkonu mína með mér:) ég kom svo bara heim um kvöldið og ég fékk líka páskaegg númer fimm ;)  Páskafríið var yfirhöfuð bara mjög fínt.

Eva

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband