Páskafríið

Ég flutti í páskafríinu sem tók alltof langan tíma þannig að ég hafði ekki eins mikinn tíma til að hitta vini eins og ég hafði vonast tilUndecided.  En annars þá flutti ég á Lerkigrund 2 sem er blokk og ég bý bara í fínni íbúð núna sem er samt frekar langt frá skólanum.  Sem sagt ég ætla bara að klára níunda bekk og fara svo í Grundó eftir hann.  Þegar ég var að flytja var helling að fólki að hjálpa okkur og frændi minn og maður frænku minnar voru að monta sig aðeins í gamni um hversu miklir atvinnumenn þeir væru og þegar þeir báru frystirinn okkar upp (við búum á þriðju hæð sem er efsta hæðin) föttuðu þeir að þeir áttu að fara með hana niður í geymslu og þeir voru úrvinda eftir að hafa farið með hann upp og þeir montuðu sig ekki mikið eftir þaðTounge.  En annars gekk allt annað vel og við komumst inn í íbúðina frekar fljótt en áttum samt alltaf eftir að taka upp úr kössum. En núna er ég fluttur inn og allt vesenið er búið.           

 

 

                                                                                                                        Pálmi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband