Aðgát skal höfð í nærveru sálar

 

Eins og ég hef komið áður inná á að koma fram við aðra eins og þú vilt koma fram við þig.  Þessi gullna regla gildir í gegnum lífið, aftur á bak og áfram. 

Þess vegna þarf að fara með aðgát þegar þú umgangast aðrar manneskjur.  Að einfaldlega passa sig á alls kyns óþarfa, ónota athuhugasemdum bæði við persónuna og á bak við hana. 

Því öll erum við eins og vitað er meðal almennings, mismunandi af sköpun og gerð.  Öll ólík með ólíkar skoðanir, tilfinningar, markmið og tilgang, og setur ýmist umhverfið og erfðaefnin svip sinn á það. 

Þess vegna er svo mikilvægt að koma fallega fram og þar með bæði að láta þér og hinum einstaklingnum líða vel.

Raska skal ekki sálarró annarra vegna þess að þú getur ekki setið á þér með að segja hvað er athugavert við tiltekinn aðila, einfaldlega út af öfundssýki eða einhverju öðru.

Stutt í dag og pínu típískt, en takk fyrir mig hehe :)

-Aðalbjörg!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband