Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar þýðir einfaldlega að maður eigi að vera góður við náungann og mér finnst að það sé nokkuð til í því þó að ég hafi ekki alltaf fylgt þessuWhistling. En ég er stundum að fíflast í fólki og stundum þá geng ég of langt og það er ekkert sérstaklega gaman.En það getur það borgað sig að vera góður við fólk eins og hún mamma mín segir alltaf "komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig" vá maður getur orðið þreyttur á þessum stanslausu málsháttum hennar en það er samt eiginlega alltaf eitthvað til í málsháttunum hennar.

T.d. þá er getur frændi minn verið hundleiðinlegur við mig en þá er ég reyndar ekkert skárri við hann en hann getur líka verið alveg stórskemmtilegur en hann hefur samt eiginlega samt alltaf varið mig ég man til dæmis eftir þegar einhverjir gaurar ætluðu að fara að berja mig þegar ég var svona átta ára þá var frændi minn bara að labba fram hjá og hann tók eftir þessu og hann sagði mér síðan að hlaupa heim og ég stóð náttúrulega upp og hljóp heim en þegar ég snéri mér við til að skoða hvað þeir voru að gera þá lamdi frændi minn gaurana.

Kristófer Arnar Júlíusson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband