Nýjustu fréttir berast frá Kleppi þar sem Keisari norðurljósanna er að taka yfir völdum. Hann þykist geta gengið um ganga eins og ekkert sé og málað málverk og hengt þau upp útum allt hann ferðast um á vagni með þrem hestum á, hann er sagður mjög ríkur og einnig eru börn allt í kringum hann. Keisari norðurljósanna og höllin hans Kleppur að nafni. Einn daginn þegar hann fór út í garðinn sinn að gera mikilfengna styttu komu menn og tóku hann og hann talaði ekki um neitt annað en hana ömmu sína sem er á himnum. Mörgum árum síðar kom vel í ljós að Keisarinn er með völd um allt landið svo sem, sokkaverksmiðju í Hveragerði, prjónastofu og mikið fleira hann er einnig giftur konu sem er gullfalleg. Svo reisti hann tveggjahæða hús sem er eins og austrænt musteri og stendur við malarkamb í sjávarþorpi. Skyndilega skilur Keisarinn við konuna sína og þá stakk hann uppá því að skipta húsið í tvennt og því vegna sagar hann tréstigan á milli hæðanna í sundur. Keisarinn býr auðvitað á efri hæðinni og hann sveiflar sér fram af svölunum niður kaðal þegar hann vill komast út úr húsi eða inn. En svo gerist það að Keisarinn yfirgefur húsið og kemur aldrei aftur. Hann fer svo til lögmanns sem dvelur inni á Kleppi. Þeir fluttu öll hans húsgögn út á auðan mel; og þar sitja þeir í ríki víðáttunnar.
Ekki leið um langt að hann flutti inn á Gistiheimili við Strangaholt. Hann leit mjög vel út sem spænskur aðalsmaður i smóking með hvítan trefil. Það hefur ekki heyrst í honum síðan hann hvarf inn í herbergið sitt.
Þar veit enginn um hann. Dvelst hann ? er hann dáinn ? eða lifandi ?
Það veit enginn
-ÓLÖFEIR.
Flokkur: Bloggar | 15.2.2008 | 11:59 (breytt kl. 12:00) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.