Verkefni Mýrin

                             MORÐ

 Maður fannst látinn á heimilinu sínu í Norðurmýrinni.

Maðurinn hét Holberg og var sextíu og níu ára.  Holberg var sleginn með öskubakka og lést samstundis.  Hann bjó í kjallara íbúð í Norðurmýrinni og átti enga konu eða fjölskyldu heldur bjó einn. Holberg vann við að keyra trukka en var nú líklega að fara að fara á eftirlaun.

Lögreglan segir að Holberg hafi verið kærður fyrir nauðgun fyrir mörgum árum en fékk aldrei dóm.  Rúnar sem er sagður hafa verið mikill vinur hans var að vinna á málinu en lét loka málinu mjög fljótt. Holberg var líka mikill vinur Elliða sem situr í Hrauninu núna og Grétars sem hvarf fyrir mörgum árum og hefur ekki fundist síða.

Lögreglan hefur ekki fundið morðingjan en lögreglan grunar nokkra menn segir hún en vildi ekki gefa nafn á neinum.  

Það er ekki heldur vitað hvort hann hefur átt einhver börn en lögreglan ætlar að reyna að hafa uppá einhverjum sem tengist honum. 

Ekki er vitað meira um þetta mál en lögreglan hefur beðið alla sem vita eitthvað um Holberg eða málið að láta lögregluna vita 

 

 

                                                                                   Pálmi
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband