Sanngirni. Hvað er sanngjarnt. Vandamálið við sanngirni er að það er túlkað á svo mismunandi hátt. Eins og með foreldra þá er umræðan örugglega oft sanngirni. Hvað er sanngjarnt. Hvað má hún/hann vera lengi úti? Hvernig bregðast þau við því að við viljum vera lengur úti eða eitthvað? Ég þekki alls konar foreldra sem leyfa börnunum að vera eins lengi úti og þau vilja, eða drekka eða allan fjandann. Hvað er rétt í svona aðstæðum? Ég hef oft pælt í því hvað ætli sé sanngjarnt.
Af hverju förum við ekki eftir útivistatímanum sem eru reglur? Útivistatíminn er til 10 og fer einhver eftir því? En þegar útivistatíminn er einfaldlega horfinn á 16 ára aldri þá á ekki að fara eftir þeim reglum því þá búa foreldrar til nýja reglu. Útivistartími á hvert barn. Einhver þeirra er jafnvel 10 eða 11 eða 12 eða bara um hánótt, alveg sama...
Ósanngirni fer svo mikið í taugarnar á mér og ég verð virkilega reið þegar ég verð vitni að því eða lendi í því að finnast eitthvað ósanngjarnt gagnvart mér. En það eru bara mínar hugsanir og öðrum finnst það jafnvel sanngjarnt sem mér finnst ekki. Hvað er þá sanngjarnt? Ég held að þegar það kemur að foreldrum og börnum þá sé það traust sem skiptir mestu máli. Að treysta dóttur sinni og gefa henni leyfi til að vera úti fram á laugardagsnótt og treysta því að hún viti alveg hvað hún er að gera. En veit hún það?
Að geta talað saman er mjög góður eiginleiki þó það sé oft frekar erfitt. Ef ég fengi strangar reglur inná mitt heimili sem mér fyndist ekki sanngjarnar þá myndi ég fá sterka löngun til að brjóta þær. Jafnvel ef ég myndi fara eftir þeim þá myndi ég örugglega byrja á því þegar ég kemst útúr reglufangelsinu að brjóta allar reglurnar sem áður voru reglur og láta öllum illum látum. En þegar ég hef traust þá hef ég eitthvað sem ég vil ekki missa því þá hef ég vonir bundnar mér. Það er óþægileg tilfinning að vera vonbrigði.
Ég á vinkonu sem á foreldra sem eru með mjög lausar reglur. Hún er ekki verri manneskja fyrir það og hún er ekki í rugli og líður vel að mér skilst. Skiptir það ekki mestu máli?.. Allir hafa rétt fyrir sér, er það ekki.. Allavega ég vildi bara tjá mig um þetta því ég hef hugsað eitthvað um þetta í sambandi við aðallega eitt en önnur mál og ég veit ekki enn hvað er rétt og hvað er rangt.. eða hvað er sanngjarnt.
-MaggaS.
Flokkur: Bloggar | 8.2.2008 | 12:13 (breytt kl. 12:13) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.