Búðir sem selja kvikmyndir á stafrænum geisladiskum geta verið undraverðar eða bölvun. Það sem er allra verst við þetta allt saman, að mínu mati, er sú að sumir DVD diskar eru seldir annað hvort textalausar eða bara með norskum, dönskum, finnskum eða sænskum texta. Ég verð aðallega var við þetta í stórverslunar keðjunni Elko, ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta er verslun frá norðurlöndunum en það getur nú varla verið mikið mál að troða að minnsta kosti enskum texta. Það færir okkur að íslenskum textum. Þeir eru enn ein léleg tilraun á að íslennska ensk nöfn. Nöfn sem eru ekki íslensk á ekki að fallbeygja, mér finnst bara fáránlegt að segja 'Til Toms' í staðin fyrir að segja það eins og mér finnst að það ætti að vera 'Til Tom'. Þetta er ekki nafn sem hægt er að beygja á frummáli þannig af hverju að færa það yfir á íslenskt mál og fallbeygja það? Ég fór í Elko í Skeifunni fyrir stuttu síðan og keypti mér 'Pulp Fiction' og án þess að spá eitthvað í það sem skipti máli þá keypti ég hana og er ég er kominn heim tek ég plastið utan af henni og set hana í spilara sem er gerður til að spila þessa gerð diska og svo byrjar myndin og ég flakka í gegnum textavalið...NORSKUR DANSKUR FINNSKUR OG SÆNSKUR. Ég þoli ekki að þurfa að einbeita mér að því að hlusta á hvert einasta orð sem lekur útúr munninum á einhverjum málhaltri persónu í bíómynd en ég verð að sætta mig við það í þetta skipti. Og ég tala nú ekki um ef að myndin er á dönsku! Í eigu minni er danska myndin 'Pusher'. Á þeim disk er enginn texti þannig að ég veit ekki hvað er í gangi, þannig ég giska bara að löggan sé á eftir honum og nær honum en skil ekki af hverju hann fór ekki í fangelsi vegna þess að hann var augljóslega með fíkniefni í höndunum!?!
jæja þá tel ég vera komið nóg af textalausu rugli, ég kveð í þetta sinn. Edward
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.