Þetta var árið 2004, eitthverntíman i mars - apríl, ég átti að fara á pabba helgi, pabbi kom og sótti mig og Hákon litla bróður minn. Hann fór með okkur í Olís og gaf okkur að éta. Svo sagði hann allt i einu, heyrðu drífið ykkur heim og gerið klárt, við erum að fara til Danmerkur, við fórum heim og gerðum allt klárt, fórum svo suður til reykjavíkur og gistum hjá pabba, vöknuðum eitthvað um 4 leitið og fórum á leifsstöð (flugvöllinn). Við fórum með vini pabba og synum hans, Valla og Magnúsi. Keyptum okkur smá nammi og svona. Og svo lögðum við í hann til Danmerkur, svolítið skrítið að fara í fyrsta skipti í flugvél. Og við lentum og höfðum örugglega aldrei verið jafn ánægðir og spenntir. Við fórum á hótelið, rosalega flott hótel. Svo morguninn eftir fórum við í Kobenhavn tívolíið, rosalega gaman og þetta var nátturulega fyrsta skipti sem við fórum í tívolí, þetta var bara alltof gaman. Fórum svo á æðislegan matsölustað og átum eins og við gátum. Fórum svo bara að horfa á mynd og höfðum það nice. Fórum svo morguninn eftir í annað tívolí sem ég man ekki hvað héti, en mér fannst það miklu betra en kobenhavn tívolíið, suddalegir rússíbanar, þetta var bara hálgerð snilld, vorum það örugglega svona 6 - 7 tíma. Fórum svo ég alveg örugglega á eitthvern matsölustað og hittum alveg svona 7 róna að betla. Morguninn eftir fórum við bara að taka saman draslið og fórum að hafa okkur til fyrir flugferðina. Þetta var bara helgarferð. Svo daginn eftir var þriðjudagur og skólinn var mættur.
Páll Sindri Einarsson <3;*
Flokkur: Bloggar | 8.2.2008 | 11:57 (breytt kl. 11:57) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.