Snjór

Snjór er hvítur. Snjór er kaldur. Snjór er skemmtilegur. Snjór getur verið gulur. Snjór er ekki góður á bragðið. Það er hægt að leika sér í snjó, búa til snjókall, búa til snjóhús, pissa nafnið sitt í honum og margt annað. Snjór rímar næstum því við smjör. já. Ég henti einu sinni járnsmiði í snjó og honum fannst snjórinn kaldur.

Snjór er úrkoma vatns í formi kristallaðs íss, sem fallið hefur til jarðar. Hann er samsettur úr miklum fjölda óreglulegra korna, sem nefnast snjókorn. Snjór er oftast mjúkur viðkomu, enda er hann gisinn og loftríkur nema að utanaðkomandi kraftar þjappi honum saman.

Snjór myndast að jafnaði í allmikilli hæð við þéttingu vatns íandrúmsloftinu við hitastig undir 0°C. Eftir að smáir ískristallar hafa myndast taka þeir að loða saman og mynda hin óreglulegu snjókorn, sem falla svo til jarðar. Hægt er að framleiða snjó með sérstökum vélum og er það oft gert á skíðasvæðum þegar náttúrulega fallinn snjór er af skornum skammti.

Úrkoman nefnist snjókoma og þegar hún fellur í logni og snjókornin ná að verða stór, er snjórinn laus í sér og kallast lausamjöll. Þegar rakastig snævarins er hátt og mikil samloðun er á milli kornanna verða þau mjög stór og er þá að jafnaði talað um hundslappadrífu. Slík snjókoma á sér oftast stað í mjög vægu frosti og hægum vindi eða logni. Þegar snjóar í roki er oftast talað um hríð og ef lausamjöll fer að fjúka myndast skafrenningur. Hann er algengastur þegar frost er talsvert og stífur vindur.

Oft er miðað við 35°N sem syðstu mörk snjókomu á láglendi á norðurhveli jarðar, en langt sunnan þessara marka snjóar í há fjöll, jafnvel í grennd við miðbaug. Nefna má fjallið Kilimanjaro í Tansaníu sem dæmi, en toppur þess er síþakinn snjó. Á heimskautasvæðunum er svo til öll úrkoma sem fellur snjór, en oft er þar þurrt og úrkoma mjög lítil.

Skráð heimsmet í snjókomu er á Mount Baker í Washingtonfylki í Bandaríkjunum, en þar féllu samtals 28 metrar af snjó á eins árs tímabili 1998 – 1999. Fyrra skráð met var á Mount Rainier í sama fylki, 25 metrar á einu ári, 1971 – 1972. Mesta sólarhringssnjókoma sem mælst hefur var við Silver Lake í Kaliforníu en þá mældust 1,93 metrar á einum sólarhring. Það gerðist 1921.

Teitur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband