djöfulsins snjór

Já þessi helvítis snjór er alveg að drepa mig !!!  :O hann kemur hingað í stórum flokkum !!! Heltekur landið alveg eins og flugur á frusskúk hesta. Það er ekki nóg að það sé snjókoma NEI !! það er annaðhvort rok eða rigning sem fylgir honum!!. Þegar það er rok með snjónum þá er ógeðslegt veður!!. Maður fær hann í sig eins og byssukúlna hríð. En þegar það er rigning þá er ennþá verra veður. Þá getur maður allt eins farið að vaða í sjónum. Það er eins og guð hafi einkvað á móti Íslandi ! Það er aldrei gott veður hérna. Og ef það er gott veður er það á sumrin. Sem eru bara 20 dagar eða eitthvað. Það hefur einu sinni (sem ég man eftir) komið hitabylgja og það var þegar ég var í Galtalæk. Allavegana aftur að snjónum. Eins og núna þá er snjókoma og stormur. Það er ógeðslegt. Bara af því að labba heim leit ég út eins og snjókarl!. Þessi snjór getur samt verið góður :D þegar það snjóar á nóttunni  og hættir að snjóa eftir kl 7 þá er þetta ágætt ;d. Þá geta krakkarnir leikið sér í snjónum, búið til karla úr snjó, engla úr snjó, velt sér í snjó, velt sér uppúr snjó, baðað sig í snjó, rennt sér í snjó, rennt öðrum í snjó og margt fleira. Það eru endalausir möguleikar fyrir krakkana en ekkert fyrir unglinga þeir eiga bara að hanga heima á meðan að snjórinn er hérna og bíða eftir að snjórinn fer og það vonandi fljótt.

.dusi.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband