Það er hægt að gera mjög mikið í snjónum eins og að fara í snjókast sem allir hljóta að kunna.
Svo er líka hægt að fara að renna sér í honum á skíðum, snjóbrettum eða snjósleða. Það er rosalega gaman að vera að renna sér á snjóþotu uppi í fjalli með einhverjum og reyna að kasta snjóbolta í hvorn annan meðan maður er að renna niður.
Annars er snjórinn mjög kaldur og getur verið mikið fyrir manni þegar maður er að labba eitthvað eins og í skólann. Það er mjög óþægilegt og kalt.
Það er líka hægt að gera svona snjóhús og snjóvirki og þá er skemmtilegt að fara í snjóstríð með mörgu fólki og skjóta hitt liðið.
Annars getur snjórinn verið mjög fyrir manni eins og þegar maður er að labba í skólann þá er hann fyrir og það er kalt og pirrandi að labba í honum. Annars er hann mjög fínn og bara skemmtilegur þegar hann er ekkert fyrir manni og maður notar hann rétt. Þá er bara mjög gaman að leika sér aðeins í snjónum með vinum.
Pálmi
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.