Of mikið af því góða

Mér finnst snjórinn alveg fínn en það er hægt að fá of mikið af því góða.

Ég er að bera út Morgunblaðið og 24 stundir og þegar ég kom út um 5 leitið í morgun var mjög fallegt veður. Það var allt á kafi og stórar snjóflyksur hrundu beint niður; enginn vindur. en um hálf sjö kom allt í einu alveg brjálað rok og ég sá varla neitt: of mikið af því góða.Undecided

Í gær fór ég svo að labba á Esjunni í snjónum með mömmu og pabba. Það var svo sleipt sumstaðar að ég þurfti að skríða á fjórum fótum upp og renna mér niður á rassinum, það var reyndar mjög gaman til að byrja með, en svo varð ég svolítið aum í rassinum.Frown

kv. Rakel 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband