Snjórinn

Snnnjóór :l, snjórinn getur verið ágætur og leiðinlegur t.d. þegar maður er að labba í snjónum í skólann eða bara labba eitthvert, svo getur maður ekki hjólað þegar það er mikill snjór. EN það er meira hægt að tala um góðu hlutina um snjó, t.d. að fara í snjókast, byggja snjóhús eða bara byggja eitthvað úr snjó, svo fara á snjóbretti skíði og stuff.

 

Úrkoman nefnist snjókoma og þegar hún fellur í logni og snjókornin ná að verða stór, er snjórinn laus í sér og kallast lausamjöll. Þegar rakastig snævarins er hátt og mikil samloðun er á milli kornanna verða þau mjög stór og er þá að jafnaði talað um hundslappadrífu. Slík snjókoma á sér oftast stað í mjög vægu frosti og hægum vindi eða logni. Þegar snjóar í roki er oftast talað um hríð og ef lausamjöll fer að fjúka myndast skafrenningur. Hann er algengastur þegar frost er talsvert og stífur vindur.

Oft er miðað við 35°N sem syðstu mörk snjókomu á láglendi á norðurhveli jarðar, en langt sunnan þessara marka snjóar í há fjöll, jafnvel í grennd við miðbaug. Nefna má fjallið Kilimanjaro í Tansaníu sem dæmi, en toppur þess er síþakinn snjó. Á heimskautasvæðunum er svo til öll úrkoma sem fellur snjór, en oft er þar þurrt og úrkoma mjög lítil.

Skráð heimsmet í snjókomu er á Mount Baker í Washingtonfylki í Bandaríkjunum, en þar féllu samtals 28 metrar af snjó á eins árs tímabili 19981999. Fyrra skráð met var á Mount Rainier í sama fylki, 25 metrar á einu ári, 19711972. Mesta sólarhringssnjókoma sem mælst hefur var við Silver Lake í Kaliforníu en þá mældust 1,93 metrar á einum sólarhring. Það gerðist 1921.

 

 

Kv Kristófer Ernir 


  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband