Ég var einn heima, var komin í rúmmið og hafði látið svaladyrnar standa opnar þegar það kom fugl fljúgandi inn. Hann flaug á gamla vasann hennar ömmu og hann brotnaði og fuglinn lá rotaður á gólfinu. Mamma á eftir að drepa mig sagði ég og tók upp fuglinn og setti hann í gamla páfagauka búrið sem var aldrei notað ætlaði að bíða eftir að mamma kæmi heim svo ég gæti útskírt hvað gerðist. fuglinn vaknaði vankaður og gaf ekki frá sér mikinn hávaða. Ég sofnaði eftir smá stund og þegar ég vaknaði var mamma að hrista mig og spyrja hvað hefði gerst, ég sagði nú bara sko fuglinn sem er í búrinu þarna flaug inn og braut vasann, VASANN!! öskrar mamma það er meira en vasinn brotinn segir hún og reynir að róa sig niður. Fuglinn hafði sloppið úr búrinu og rústað öllu, ég er dauður hugsaði ég, en ég var bara látin taka þetta til og svo búið. Svo límdi ég brotin af vasanum saman aftur því hann rústaðist sem betur fer ekki. Mamma var ánægð með það og hætti bara að minnast á þetta litla atvik við mig.
Flokkur: Bloggar | 1.2.2008 | 11:57 (breytt kl. 12:09) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Verkefni 9.IS 6.mars: Laugar, væntingar og veruleiki. Verkefni 10. bekkja 7.mars: Hvernær verður fólk fullorðið?
Verkefni fyrir 9.IS 28. febrúar og 10.JM og 10.DÞ 29. febrúar: Skrifið um málsháttinn ,,Aðgát skal höfð í nærveru sálar".
Verkefni fyrir 9.IS 21. febrúar og 10.JM og 10.DÞ 22. febrúar: Skrifið um málsháttinn ,,Hver er sinnar gæfu smiður".
Verkefni 14. og 15. febrúar: 10. bekkirnir skrifa frétt um atburð úr Englum alheimsins. Nemendur 9.IS skrifa frétt úr Mýrinni.
Ritunarverkefni fyrir 9.IS 24. jan. og 10. bekkina 25. jan: Á að lesa fornsögur í grunnskólum?
Hver er þín skoðun? Taktu afstöðu og færðu rök fyrir máli þínu.
Verkefni 10.JM og 10.DÞ í tíma 18. janúar:
Fyrirmyndin mín.
Ritunarverkefni fyrir 10. bekkina 11. janúar 2008 og 9. IS 17. janúar.
Lýstu uppáhaldsstaðnum þínum. Það getur verið horn í herberginu þínu eða staður sem þú ferð gjarnan á. Lýstu staðnum þannig að sá sem les skilji hversu góður þér þykir hann vera. Gleymdu ekki að nota orð sem lýsa hljóð og lykt jafnt sem umhverfi.
Gangi ykkur vel. Inga Sig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.