Fyrsta skiptið sem ég...

Fyrsta skiptið sem ég fór til Bandaríkjanna það var síðastliðinn nóvember ég fór með pabba mínum og konunni hans það var geðveikt gaman. Fyrst fórum við að hitta frænda minn og fjölskylduna hans sem búa í Virginia Beach. Síðan daginn eftir fórum við til Washington D.C að skoða. Við skoðuðum  Washington minnismerkið, Lincon minnismerkið, World War 2 minnismerkið og mörg fleiri minnismerki svo sem Víetnam minnismerkið og ég nenni ekki að segja fleiri. Síðan fórum við í búðir það var nokkuð gaman. Og síðan fór ég með pabba mínum að kaupa keilukúlu og keilukúlutösku það var geðveikt vesen. En það tók nokkra daga að bora kúlunna, en þegar það var búið að bora kúluna hjá mér og pabba mínum þá fórum við að spila keilu ég rústaði pabba það var gaman. En versti parturinn við ferðinna var að ég varð veikur.

 

Kristófer Arnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband