Fyrsta skiptið sem ég

Fyrsta skiptið sem ég fór til Spánar, það var frábært. Ég fór með Baldvini og fjölskyldunni hans, og auðvitað mömmu minni. við fórum til Calpe sem var frekar góður staður, vorum 10metra frá ströndinni og gistum á hóteli með sundlaug og voru margir íslendingar á þessu hóteli. Vorum ekki með bíl þannig við þurftum að labba út í búð og þurftum að labba til baka með matvörurnar, vanalega þurfti ég að labba með 8 lítra af vatni sem var mjög þungt. Fórum í sundlaugargarð og skemmtigarð, man ekki hvað sundlaugargarðurinn heitir en skemmtigarðurinn hét Terramitica (veit ekki alveg hvernig maður skrifar það en held að þetta er skrifað svona. En vorum bara í um það bil 10 klukkutíma í skemmtigarðinum af því það var svo langt að fara í hann og heim. En allavega, það var fall turn, rússíbani, leiktæki, tölvu salur með helling af drasl tölvum og svo var bara helling af fleiri leiktækum, það var líka veitinga staður þarna, svo fólkið sem vann þar sýndi sýningu sem var samt svona söngleikur eiginlega svo fórum við bara heim. Svo sundlaugargarðurinn sem var geggjað flottur, það voru svo margar rennubrautir og svo sá ég flugu sem leit alveg út eins og drekafluga Shocking, ég varð frekar hræddur en hún gerði samt ekkert nema að fljúga og svo fór hún. Svo fengum við okkur svona donut hring sem maður sat í og renndi sér, þetta var gaman. Aldrei neitt skemmtilegt í sjónvarpinu nema C.S.I Miami sem var samt á spænsku, það nennir enginn að horfa á það á spænsku því það er glatað en það var ekkert annað að gera. Frænka mín fékk sólasting  og varð veik í kanski 5 daga eða eithvað svoleiðis, langt síðan ég fór þannig man ekki eftir öllu sem gerðist en þetta var frábærð ferð og fer aftur til útlanda á þessu ári, fer til Spánar, reyndar Kanareyja.

 

Kv: Kristófer Ernir 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband