Þegar ég vaknaði þennan morgunn beið mín sólríkur dagur. Klukkan var hálf 8 að morgni og 1 júní var kominn og nokkrir dagar eftir af skólanum. Ég var mættur kl 8 í skólann og Sigríður sem átti að kenna okkur stærðfræði þennan tíma kom ekki í skólann því hún var með veikt barn heima. Í staðinn kom hann Guðmundur og kenndi okkur. Við krakkarnir vorum að tala um að nokkrir glæpamenn úr rússlensku mafíuni væru á Íslandi, það hafði komið í öllum fréttum og blöðum daginn áður og löggan væri að leita þeirra útum allt land. Gummi sagðist nú vita allt um þetta og hann hafði séð þá hérna keyrandi um götur Akraness einsog brjálæðingar og hann vissi líka hvar þeir gistu. Við krakkarnir vorum ekki alveg að kaupa þetta og gerðum bara grín af honum, þá brást hann gummi reiður við og þrasaði sitthvað á forníslensku og ákvað bara að sýna okkur hvar þeir héldu sig og við hlóum bara af þessu en vorum frekar ánægð með að komast út úr tíma. Hann labbaði með okkur niður að Ægisbraut og sagði okkur að stóra húsið handan við götuna var heimili þeirra. Svo eftir 5 mín. Sáum við svarta bíla keyra þangað hinn. Við ákváðum að elta þá, þeir fóru bakvið húsið með bílana og við sáum þá bera inn nokkur tonn af hassi og e-pillum. Við hringdum í lögguna og sögðum henni alla söguna og hún kom og handtók þá alla. Daginn eftir komum við í öllum fréttum og blöðum og okkur var líkt við sjálft F.B.I. Endir Sigurjón G.
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Verkefni 9.IS 6.mars: Laugar, væntingar og veruleiki. Verkefni 10. bekkja 7.mars: Hvernær verður fólk fullorðið?
Verkefni fyrir 9.IS 28. febrúar og 10.JM og 10.DÞ 29. febrúar: Skrifið um málsháttinn ,,Aðgát skal höfð í nærveru sálar".
Verkefni fyrir 9.IS 21. febrúar og 10.JM og 10.DÞ 22. febrúar: Skrifið um málsháttinn ,,Hver er sinnar gæfu smiður".
Verkefni 14. og 15. febrúar: 10. bekkirnir skrifa frétt um atburð úr Englum alheimsins. Nemendur 9.IS skrifa frétt úr Mýrinni.
Ritunarverkefni fyrir 9.IS 24. jan. og 10. bekkina 25. jan: Á að lesa fornsögur í grunnskólum?
Hver er þín skoðun? Taktu afstöðu og færðu rök fyrir máli þínu.
Verkefni 10.JM og 10.DÞ í tíma 18. janúar:
Fyrirmyndin mín.
Ritunarverkefni fyrir 10. bekkina 11. janúar 2008 og 9. IS 17. janúar.
Lýstu uppáhaldsstaðnum þínum. Það getur verið horn í herberginu þínu eða staður sem þú ferð gjarnan á. Lýstu staðnum þannig að sá sem les skilji hversu góður þér þykir hann vera. Gleymdu ekki að nota orð sem lýsa hljóð og lykt jafnt sem umhverfi.
Gangi ykkur vel. Inga Sig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.