Ég var að selja merki

Ég hringdi dyrabjöllunni hjá nágrannanum sem var nýfluttur inn, ég var að selja merki  sem ég bjó til með áletruninni "Bjargið pöndunni !"  og ég var líka með söfnunarbauk fyrir fólkið. En ég vildi ekkert bjarga pöndunni, mig vantaði bara pening fyrir loftbyssu, til þess að skjóta ketti sem eru alltaf að læðast í garðinum mínum. En allavega þessi maður trúði þessu og lét mig fá 2000 kr, og loftbyssan kostaði 5000 kr. Ég hélt áfram niður að næsta húsi og fékk þar 1000kr ,mjólk og smákökur. Þær voru góðar, nema að ég held að það hafi verið soldið amfetamín í þeim , en ekkert rosa mikið. Ég var kominn með 3000 kr. , meira en helminginn af því að ég þurfti fyrir loftbyssuna mína. Ég fór í næsta hús og þar var maður sem var soldið sóðalegur og hann var með loftbyssu í hendinni. Ég varð soldið óttasleginn og spurði hvort hann vildi styrkja  pöndurnar. Hann sagði : Já auðvitað væni minn, Hérna taktu þessar 4000 kr og þessar loftbyssur. Þær voru 3, tvær svona skammbyssur og ein svona haglabyssa. Ég þakkaði fyrir og fór og svo datt mér í hug að þessi maður væri á sýru, en þám gæti hitt fólkið sem lét mig fá pening alveg eins verið  á sýru. Ég hélt niður í bæ og spurði gamla konu hvort hún væri ekki til í að splæsa á einn veiðiriffil í veiðibúðinni, Hún var til í að það og þegar hún var að borga, sá ég sýruna. Búðarkonan var líka á sýru og ég sá fram á að þetta væri nokkuð töff, allir á sýru og þeir væru bara til í allt, kaupa drasl fyrir og læti. Ég for svo heim með loftbyssuna mína og fór að skjóta ketti.

 

takk fyrir mig

Gunnar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband