Ég hringdi dyrabjöllunni hjá nágrannanum sem var nýfluttur inn, ég var að selja merki til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Það kom maður á fimmtugsaldri til dyra og ég spurði hann hvort hann myndi vilja styrkja krabbameinssjúk börn, þá sagði hann ,,ég hef nú verið að gera það í 3 ár og var að hætta því fyrir viku. Ég gat ekki annað en spurt hann hvernig hann hafi verið að því og þá sagði hann mér að hann hafi átt 11ára strák sem var með krabbamein en hann hafi dáið fyrir viku. Ég vorkenndi manninum svo mikið hann var bara þarna aleinn og í einhverjum drasl fötum. Ég sagðist samhryggjast og fór svo í næsta hús. Daginn eftir gat ég ekki annað en hugsað um hann og hvernig honum hlyti að líða, svo ég fór yfir í húsið hjá honum og dinglaði en enginn kom til dyra svo að ég dinglaði aftur... ekkert gerðist svo að ég fór bara heim og hugsaði að hann hlyti að hafa farið útí búð eða e-ð en samt var bíllinn hans fyrir utan þannig að þetta var frekar skrítið. Eftir 3 tíma fór ég aftur yfir og dinglaði en enginn kom svo að ég dinglaði nokkrum sinnum og bankaði... enginn kom svo að ég prufaði að taka í húninn og það var ólæst þannig að ég læddist inn og það kom svona ótrúlega ,,creepy ískur af hurðinni, ég hélt áfram inn og kallaði á hann en hann svaraði ekki, vinur minn átti heima í þessu húsi svo að ég rataði vel inní því. Ég fór inní eldhús og enginn var þar svo að ég ákvað að fara uppá efri hæðina og gá hvort að hann væri kannski þar.. það var opið inní öll herbergi nema eitt og það var stærsta herbergið ég fór að því og opnaði hurðina hægt og rólega, það var slökkt en ég kveikti ljósið og sá hann þarna hangandi í einhverju bandi sem var bundið hringinn í kringum hálsinn á honum, ég var skíthræddur ég hljóp heim hringdi á neyðarlínuna og það kom lögregla og sjúkrabíll eftir svona 5 mínútur. Þeir sögðu við mig að það hafi verið gott að ég hafi bara labbað inn og svo þurfti ég að fara til sálfræðings einusinni í viku næstu 3 mánuðina til þess að jafna mig á þessu. Ég er orðinn góður núna og lifi lífinu að fullu með öllum í kringum mig og gæti ekki verið ánægðari með lífið.
Takk fyrir mig.
Lárus Beck Björgvinsson.
Flokkur: Bloggar | 1.2.2008 | 09:38 (breytt kl. 09:41) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.