ég heyrði einhver læti frammi, held að það hafi verið inní eldhúsi. Ég varð svolítið smeyk þannig að ég vildi kanna hvað var í gangi, ég fór fram og inní eldhús en þá var gardínan bara að sveiflast til og frá því það var alveg galopinn glugginn, ég lokaði glugganum og opnaði ísskápinn náði í kókómjólk og labbaði inní herbergi en þegar ég var alveg að verða komin sá ég að svala dyrnar voru opnar uppá gátt og það var ljós inní herbergi. Ég var alveg viss um að ég hafði ekki kveikt ljósið. Ég hljóp inná baðherbergi og læsti mig inni dauðhrædd um að það væri einhver að brjótast inn. Ég reyndi að láta sem minnst heyrast í mér, og hlustaði við dyrnar hvort að það væri einhver hreyfing frammi. Þá heyrði ég það að einhver var að labba frammi, og manneskjan var ekkert að fara varlega, heldur heyrði ég að hann labbaði asnalega, og heyrði að hann rakst utan í alla veggina. Hræðslan var aðeins farin að hverfa þannig að ég gægðist aðeins út um hurðina og sá að þetta var hann Siggi í næsta húsi, hann var fullur og hafði greinilega farið í vitlaust hús, ég hló bara, hann var alveg meinlaus þegar hann hafði fengið sér í glas. Ég fór til Sigga, sagði honum að setjast í sófann á meðan ég hringdi í Elsu, konuna hans, hún var alveg miður sín, og ösku reið út í kallinn sinn að hafa gert þetta. Stuttu seinna kom hún og hún húðskammaði hann, ég var ekkert mikið að hlusta á þau, en heyrði að hún var að eitthvað að tala um skilnað. Ég vona að það gangi ekki eftir. Hann er mjög fínn þegar hann er ekki að drekka. Þótt hann geri það aðeins of oft.
Allavega, ég lokaði svaladyrunum, og lagðist uppí rúm og steinsofnaði.
Flokkur: Bloggar | 1.2.2008 | 09:30 (breytt kl. 09:30) | Facebook
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.