sagan mín - Óli Jósef


Fyrsta skiptið sem ég fór einn út í búð. Kom gamall karl til mín og spurði " hvað ertu gamall drengur?" ég sagðist bara vera 8 ára gamall. Mér brá því mér fannst karlinn svolítið skrítinn. En þegar ég kem heim, þá var ég einn heima. ég reyndi að hringja í mömmu og pabba. en enginn svaraði. ég fór bara að taka mig til í háttinn. Ég vonaði bara að mamma og pabbi kæmu bara heim eins fljótt heim eins og þau gætu. Þegar ég var kominn upp í rúm og hafði látið svaladyrnar standa opnar þegar ég heyrði brak við svaladyrnar. Ég var alveg skíthræddur, Ég kreppti mig saman allur og ég óskaði þess að mamma væri komin heim. Ég var alveg viss um að þetta væri einhver vondur karl, ég fór að kíkja á þetta, ég sá einhverja skuggalega veru standa við dyrnar, svo kem ég auga á annan sem stóð við eldhúsinnréttinguna. Ég fór alveg í keng. Ég fór aftur inní herbergi, greip símann, stimplaði inn númerið inn hjá mömmu. hringdi, en síminn sagði að það næðist ekki í símann hennar í augnablikinu. ég dreif mig að hringja í pabba síma. Allt í einu heyri ég í símanum hans pabba frammi í stofu. Ég ætlaði alveg að garga. Ég hélt að þeir hefðu náð pabba. Ég fór fram að kíkja hvort að pabbi væri í þeirra haldi, allt í einu kvikna ljósin inní stofu og eldhúsi og þar standa mamma og pabbi. pabbi heldur á símanum sínum og spyr: "varst þú að hringja vinur". Ég hljóp til pabba og faðmaði hann eins fast að mér eins og ég gat. ég sagði þeim sögunaog allt varð í himnalagi. ég steinsofnaði þegar pabbi var búinn að lesa fyrir mig kvöldsöguna. Ég hafði aldrei sofið betur á ævinni.

 

-Ólafur Jósef Ólafsson 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband