Minn uppáhaldsstaður

Já, uppáhaldsstaðurinn minn er örugglega bara í tölvustólnum eða herbergið hjá vini mínum í Reykjavík, eða Dalurinn minn :D...

Í tölvustólnum get ég hangið í tölvunni og spjallað við fólk í gegnum samskiptaforritið Microsoft Network og spilað tölvuleiki og flakkað á netinu og hlustað á góða tónlist og horft á þætti og kvikmyndir og borðað og lært mína heimavinnu ooog spila á gítarinn minn líka. Ég eyði oftast öllum deginum mínum þar, nema að sjálfsögðu þegar ég er beðinn um að fara út og eitthvað.

 

Hjá vini mínum í Reykjavík bý ég á helgum og bara í öllum fríum, bara gaman þar...hef svosem engar spes ástæður til að kalla það einn uppáhaldsstaðinn minn, það er bara eins og annað heimilið mitt. Ég geri bara það nákvæmnlega sama þar og heima hjá mér, nema kíki kannski meira út  og á fleiri vini þar ^^

 

Svo á föðurættin mín líka dal, sem heitir Dufansdalur, og er í Arnarfirði. Þar er ég oft á sumrin, í bústaðnum og bara dunda mér eitthvað. Á helling af minningum þaðan, og þetta er einn uppáhaldsstaðurinn minn líka. 

 

 

Símon ! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Blogg Brekkó

mergjaður anskoti!!!  skemmtu þér um helginaaaa

Blogg Brekkó , 11.1.2008 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband