Færsluflokkur: Bloggar

Nútímahetja

ég var að spá í hver væri nútímahetja það eru lika margir sem eru að spá í það ég líka.

súpermann hann er hetja allra tíma útaf hann bjargaði fólki úr hættu og hann var bara öruglega skemmtilegur þótt ég þekki ekki leikarana sem hafa leikið hann en hann bjargaði fullt af fólki.

hann er nútímahetja


Nútímahetjan Rick Allen

Það er hægt að skrifa um marga menn í þessu. Til dæmis menn í sögunni eins og Martin Luther King. Svo væri alveg hægt að skrifa um íþróttamenn en hvað hafa íþróttamenn gert til að veita einhverjum innblástur. En ég ætla að skrifa um tónlistarmann sem að væri ekkert merkilegt nema hvað að hann er einhentur trommari.

Maðurinn sem ég ætla að skrifa um heitir Rick Allen og er trymbill hjá rokk hljómsveitinni Def Leppard. Það er hægt að segja um þennan mann að hann gæti veitt flestum tónlistamönnum innblástur. Hann er einn af þessum tónlistar mönnum sem að lætur ekkert buga sig og ég ætla að vera svo djarfur að líkja honum við Ray Charles og Stevie Wonder. Hann er einn af þeim mönnum sem að segja að ef að þú dettur af baki þá áttu að fara strax aftur upp á hestinn. Það voru sorgartíðindi fyrir aðdáendur Def Leppard þegar það fréttist að trymbillin Rick Allen hefði lent í bílslysi og hefði misst handlegginn . En beint eftir bílslysið fór hann að spila á trommur einhentur á sjúkrahúsinu og allir voru rosalega hissa um að hann gæti spilað á trommur eftir að hafa misst annan handlegginn. En svo eftir smá þjálfun var hann orðinn góður í að spila einhentur. En hann hefur sérstakt kerfi á trommunum núna að hann getur notað fæturna til að aðstoða.

En það eru margir merkismenn sem væri hægt að skrifa um en ég valdi Rick Allen því að hann er frábær tónlistarmaður og mikill merkismaður. Þó að mörgum öðrum þyki margir aðrir menn merkilegri er Rick Allen í persónulegu uppáhaldi hjá mér og mér finnst fáir merkilegri.

 

Heiðar kveður 


Nútímahetja !

Að hugsa um hver er nútíma hetja og hver er ekki nútímahetja getur verið snúið því það eru margir menn sem eru að gera margt stórt í heiminum í dag.

Ég myndi segja að Jón Ásgeir Jóhannesson & Björgólfur Thor Björgólfsson því að þeir eru að standa sig alveg frábærlega í viðskiptaheiminum í dag. Björgólfur er á lista yfir ríkustu menn heims sem að er mjög stórt, sérstaklega fyrir íslending. Þeir eru báðir alveg fluggáfaðir og með mjög gott viðskiptavit að auki sem að gerir þá svona góða í því sem þeir eru að gera.  Þeir eru líka báðir tveir svalir og skemmtilegir menn. Einnig taka þeir mjög oft réttar ákvarðanir.

Þess vegna eru þeir nútímahetjur.

 

-BenniM 


Nútímahetja.

Nútímahetja? ætli það séu ekki öll þessi hjálpastörf sem eru að hjálpa fátæku fólki í þróunarlöndunum. Eins og t.d Rauði Krossinn og ABC hjálparstarf. Fólk sem býður sig fram að fara lengst til Afríku að hjálpa fólki og horfa uppá það kveljast og reyna að gera allt til þess að halda í því lífi. Það eru hetjur. Hetjur eru líka fólk sem hefur barist við sjúkdóm allt sitt líf og lært að lifa með því í sátt og svo hjálpað öðrum að komst í gegnum sama sjúkdóm. 

Annars veit ég það ekki alveg...

 

Ástrós.


Nútímahetja.

    Hetja er mjög stórt orð og því er erfitt að finna sér alvöru nútímahetju en hérna ætla ég akkurat að reyna það og vonandi að þið hafið gaman af.

    Hetjur hafa alltaf verið til síðan sautjánhundruð og súrkál. Ég held að nú til dags sé samt meira um að fólk sé bara jafnt og þess vegna er mikið erfiðara að finna sér eina hetju nú til dags heldur en í gamla daga. En persónulega er mín hetja Donald Trump vegna þess að hann fór úr því að vera bara meðal maður yfir í það að vera einn ríkasti maður heims. Hann á stærsta byggingarfyrirtækið í Bandaríkjunum og svo á hann hellinga af fleiri litlum fyrirtækjum.

    Hann er líka með sinn eiginn raunveruleikaþátt þar sem hann lætur fólk vinna fyrir sig og þeir sem standa sig illa verða reknir. Sá sem að vinnur keppnina fær vinnu hjá Trump og helling af öðrum verðlaunum.

    Donald Trump er mjög góður maður líka og gefur alveg helling til góðgerðarmála. Maður sem kemur úr meðalmennskunni og verður svona ríkur hann kann miklu betur að meta það og þess vegna er hann svona góður í því sem hann gerir.

    Ég er semagt þeirrar skoðunar að Donald Trump sé ein af nútímahetjunum og gangi honum bara vel.   

 

Lárus Beck.donald_trump


hetjurnar mínar

Ef ég hefði einhverja hetju til að tala sérstaklega um myndi ég gera það en það eru svo margar nútímahetjur þannig ég ætla að skrifa um nokkrar þeirra. Eminem, Jay Leno.

Aðal hetjur mínar eru þær sem eru í skemmtunar bransanum því það mesta sem ég leita að sem unglingur er skemmtun.Eminem er hvítur rappari sem mér finnst vera eini rapparinn sem talar um "alvöru hluti" ekki bara hvað hann á bíla og konur o.s.f.v. Jay Leno er aðal maðurinn í þættinum "The tonight show with Jay Leno" og hann er með mjög skemmtilegt efni og 2 eða fleiri atriði með annaðhvort dýrum, viðtölum eða uppistandi og fleira.en miklu  hetjur eru á t.d. netinu sem búa til allskonar myndbönd sem eru mjög skemmtileg til að nefna: Robert Benfer,Skoo,Weebl o.s.f.v. sem búa bara til endalaus bull myndbönd sem eru bara út í hött en eru samt fyndin og svo eru auðvitað þessir klassísku myndbönd eins og með Lee Evans sem er uppistandari, söngvari og grínisti og blandar þessu öllu saman oft.

En svona eru hetjurnar mínar, ég hef engar hetjur sem gerðu eitthvað frábært fyrir landið bara eitthvað sem heldur mér glöðum.

 

Bjargmundur. E. E.


My Hero

hæjb;) ætlaði að segja frá minni nútímahetju en ég hef slæmar fréttir að færa:( ég á enga.. ég á allveg bíómynda persónu sem hetju það er Underdog hehe:) hvað get ég sagt þetta er bara hreinn snillingur þessi hundur, flígur á milli staðar og bjargar öllum frá vandræðum:P en hetjan mín núna í raunveruleikanum það er hún mamma mín hún Jóna Guðrún, hún er endalaust mikill snillingur, kemur mér alltaf til að hlæja og lætur manni alltaf líða vel þegar manni líður ílla og er bara best

ég veit þetta er stutt:(

KV Margrét RánBlush


Nútímahetjur

Hér mun ég skrifa um persónu/persónur sem mér á að finnast vera nútímahetjur. Þær eru margar og mismunandi, ég ætla að koma með mitt álit.

Það eru til margar skýringar á hetjum, persónulegar hetjur og svo almennar hetjur. Dæmi um almennar hetjur er til dæmis Martin Luther king, Che Guevara, Jón Sigurðsson og kannski superman? En hvernig geta þeir verið nútímahetjur þegar þeir voru uppi fyrir langa löngu?
Mínar persónulegu hetjur eru Quentin Tarantino, Stanley Kubrick og David Fincher, þetta eru mínir uppáhalds leikstjórar sem hafa gert mörg meistaraverk að mínu mati, sem gerir þá að mínum hetjum, því ég lýt upp til þeirra. Reyndar er Stanley Kubrick ekki á lífi lengur, þannig hann telst varla sem nútímahetja. Svo lýt ég líka nokkuð mikið upp til góðra tónlistarmanna, eins og til dæmis The smashing pumpkins, Foo fighters, System of a down og Evanescence, samt eiga þau mörg lög sem þau gerðu fyrir 20 árum en ekki núna í nútímanum.

Niðurstaðar er að mér finnst allir þessir sem ég taldi upp þarna vera hetjur - núna - mér fannst það í gær, finnst það í dag og mun finnast það. Nútíminn er eitthvað sem gerist núna þannig já þeir eru greinilega mínar nútímahetjur þótt þeir gerðu alla þessa góðu hluti fyrir löngu.

salka kveður að þessu sinni
hittumst heil


Hvenær kemur vorið?

Hvenær kemur Vorið???

Þegar sólin kemur, hlýrra veður og bara allt miklu skemmtilegra. Þegar flugurnar vakna, börnin fara á kreik, taka út hjólin sín og allir eru bara voða voða voða voða voða voða voða voða voða voða rosalega súperb frábærlega glaðir! Það er ekkert dimmt á kvöldin heldur lýtur allt út eins og á daginn. En hinsvegar er það mest áberandi þegar sveitamennirnir bera á túnin sín og þessi sterka kúasaurs lykt kemur, þá finnst mér að vorið sé komið.

 

Teitur...


vor

hvenær er vorið komið ?

vorið er nú ágætt heitt og blómin fínu :D flugur komnar á kreik :S sérstaklega þessar býflugur og geitungar :O ógeðslegar þessar flugur. bændur bera tað á tún og kúkalykt fyllir allt akranes. núna er kúkalykt úti. ég þorði ekki út í fyrradag, ég var hræddur um að þessi kúkalykt myndi drepa mig. loftið verður hlýrra og maður getur hætt að ganga í úlpu og þannig. bolurinn og stuttubuxurnar eiga best við á vorin. allt litla fólkið dansar af kæti þegar vorið kemur. þegar allt þetta gerist þá er vorið komið.

 

 

gunnar 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband