Færsluflokkur: Bloggar
Ef ég myndi velja eina mestu hetju heimsins myndi það ábyggilega verða Lalli. Lalli er alltaf að berjast við ill skrímsli og póstkassa. Einu sinni var ég úti að tjilla og þá kom hann og skallaði mig í ilið. Ég hugsaði að hann væri ábyggilega bara leiður því að frændi hans gerir alltaf grín af hárinu hans sem lætur hann líta út fyrir að vera lykill. Hann frændi hans sem hét Úggalasekkanú var ávalt laggður í einelti af lyklum þannig hann hatar þá mjög mikið. En annars var fjölskyldan hans bara fín því að hann var hetja og elskuðu hann, nema Úggalasekkanú. En ég fór til hans Jóns bónda og lét hann skoða málið, og hann komst að því að brjálaði gaurinn í næsta húsi var að dáleiða hann til að vera fiskur, þannig hann hagaði sér eins og fiskur. Ég varð mjög hissa því að Lalli var alveg bara ónæmur fyrir dáleiðslu. Ég skrapp því heim til hans og ákvað að checka hvað hann avr að borða, og þar sá ég það. Íbúðin hans var að drukkna í smokka umbúðum, sem að allir vita að maður verður mjög næmur fyrir dáleiðslum eftir að hafa étið þá. En hinsvegar er Lalli með mega maga sem gerir hann ónæmann fyrir alveg helling að drasli, þ.á.m smokkum og eplum með skinku. Það fékk mig til að hugsa um alla fiskana sem eru í trjánum, sem minnir mig á ATVIKIÐ. Einn daginn ákvað ég að labba í skóginum sem að allir álfarnir búa í og Mjallhvít. Aldeilis var þetta svalur skógur, það voru kanínur út um allt og eikker álfur sem var alltaf að hnerra var alltaf að leika sér við þær og hló geðveikt mikið í leiðinni. En ég var bara eikkað að tjilla í fossinum og þ´allt í einu fékk ég magó í hausinn. Ég skoðaði þetta mangó og komst að því að það var ekki mangó heldur gulrót sem var í fýlu. Þá ákvað ég að gerast flóðhestur og vinna með gulrætur í hausnum á Jón Eplamanni. Þessar gulrætur voru allar skemmtilegar en allar brögðuðust þær eins og tær sem maður þvær. Lengi skemmti ég mér við að horfa á þær og dreyma um ketti sem að áttu glúggatjöldúr, þangað til að ég sá þessa brjáluðu gulrót sem að á bara helling af köttum með glúúúggatjöldúrum. Ég freistaðist og ætlaði að kaupa 1stk af honum, og hann var viljugur fyrir því og seldi mér kött á 6 dollara. Ég var svo ánægður og ætlaði að monta mig fyrir vinum mínum sem að búa í klettunum. En þegar að þeir horfðu á hann breyttust þeir í apa og lömdu mig með sápukúlum. Þá ákvað ég að hætta að tilbiðja gulrætur. En eins og ég var að segja/skrifa áður en mér var hugsað til gulrótanna, þá man ég að Lalli átti hest sem að afdáleiddi fólk með borðum. Ég hringdi í Lalla og bað hann um að koma ekki á Main-street NYC og koma ekki með hestinn sinn. Auðvitað kom hann og með hestinn af því að öfug-sálfræði verkar á hvern sem er, meira að segja Silju! Fyrst hann var kominn með hestinn gat ég auðveldlega tekið lifrina úr honum og sett á hausinn á mér, en ég varð að stilla mig og gera það ekki. Ég ákvað frekar að gera það rétta og tók bita úr maganum á honum, lamdi hann með honum og að lokum setti hann á hausinn á mér og dansaði eins og drottningin í Frakklandi.
ENDIR
Gískli SeM aÐ eR bArA eInFaLdLeGa BeStUr!
Bloggar | 28.4.2008 | 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hetjur eru í rauninni ekki til nema fólk sem hefur gengið í gegnum það erfiðasta bara allt á millli himins og jarðar ! en það er bara svo margt . En bróðir minn er mín nútímahetja .Hann Haraldur Már Haraldsson lenti í hræðilegu bílslysi með besta vini sínum Þorvaldi , slysið varð 18 febrúar og Þorvaldur var þungt haldinn og þeir báðir meðvitunda lausir , þann dag var ég að fara að syngja í undankeppninni fyrir samfés og ég mætti sjúkrabílnum á leiðinni en vissi ekki að þetta væru þeir . En já Þorvaldur var það þungt haldinn að hann var sendur strax til Reykjavíkur en Halli Már var ennþá hérna á skaganum , um kvöldið fékk Halli Már fljótt hita og byrjaði að æla blóði og einhverju ;S og þá var hann fluttur til Reykjavíkur rakleiðis , á leiðinni í sjúkrabílnum fór blóðþrýstingurinn að lækka svo hrikalega að mamma vissi ekki hvað hún ætti að halda . En ég ættla bara að segja að þetta voru bara erfiðustu dagar sem ég og fjölskyldan höfum lifað og líka fjölskyldan hans Þorvaldar . En fimmtudaginn 28 febrúar klukkan hálf tíu lést Þorvaldur Kristinn Guðmundsson , nýrun gáfu sig . Þorvaldur var yndislegur strákur og var alltaf heima hjá okkur , hann var allgjör engill og skal fullvissa að hann sé það enn . Halli Már lifði af . Hann er með blæðingu , mar og bólgu á heilanum hann háls brotnaði , þurfti aðgerð , missti Skammtímaminnið en er ennþá að fá það til baka í dag , en mesta er að honum finnst þetta sér að kenna , sem er ekki . Þetta var besti vinur hans eini strákurinn sem hann sagði allt ! Maður getur ekki sett sig í hans spor og ég elskan útaf lífinu en bara segja þetta ok þið eigið ábyggilega systkini líka en eins og þessi upplifun kennir manni að láta fólk vita á hverjum degi hvað þú elskar það mikið því þú veist ekki hvenar það fer frá manni . Ég bara veit ekki hvernig Maríu Júlíu líður núna og bara allri fjölskyldu Þorvaldar .
Elskum þig að eilífu Þorvaldur Kristinn Guðmundsson . hvíldu í friði elsku vinur .
- farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma um aldur og æfi þú verður mér nær ALLDREI ég skal þér gleyma !! <3
Hugrún Eva .
Bloggar | 28.4.2008 | 13:49 (breytt kl. 13:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mín nútímahetja er Orgazmo sem skítur geislum a fólk og það fær fullnægingu hann getur hjálpað fólki sem er til dæmið ekki með hendur og hann skítur bara geislanum í þá og þá bara fá það rosalega og hann er líka geðveikt töff hann er í bleikum búningi sem er geðveikur og er með Orgazmo byssu sem er töff!! mér langar geðveikt að eiga svona búning :D . síðan er hann með aðstoðarmann með sér sem heitir choda boy sem er geðveikt svalur hann er með hatt sem er með dildó ofan á sér.Choda boy fann uppá þessari Orgazmo byssu sem Orgazmo notar til að gefa fólki fullnægingu og þegar hann og Orgazmo prufuðu hana þá skutu þeir Choda boy og hún virkaði og hann fékk dúndrandi fullnægingu. Hér kemur mynd af þeim báðum svo þið gettið séð hvað þeir eru mökk svalir gaurar Anton Logi
Bloggar | 28.4.2008 | 13:48 (breytt kl. 13:49) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svona hetjan mín væri Dennis Rodman myndi ég segja. Dennis Rodman var leikmaður í NBA og var frákasta kóngurinn í langan tíma. Hann er svertingi og alltaf þegar hann var að keppa litaði hann hárið á sér geðveikt skrítið eins og grænt og rautt eða gulllitað þannig að hann er mjög sérstakur leikmaður. Hann stökk til dæmis alltaf eftir boltanum þegar hann var á leiðinni útaf og meiddist stundum illa og það var eins og hann hugsaði fyrst um boltann og svo um sig sem er bara gaman að sjá. En hann spilaði til dæmis við með Michael Jordan og Scottie Pippen hjá Chicago Bullsc og þetta eru bara allir snillingar. Dennis Rodman er hins vegar hættur í NBA enda orðinn frekar gamall. En ég hef eiginlega ekkert mikið meira að segja um hann því ég er ekki alveg nógu klár á ferlinum hans ennþá
.
Pálmi
Bloggar | 28.4.2008 | 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég á mér enga hetju en ef ég þyrfti að velja þá væri það Criss Angel gaurinn er snillingur hann er án efa besti sjónhverfingarmaður allra tíma Harry Houdini er aumingi á miðan við Criss Angel. Christopher Nicholas Sarantakos er fæddur árið 1967 19 desember
Bloggar | 28.4.2008 | 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mér finnst Dr. Phil vera nútímahetja. Hann er gamall kall sem er með skalla og notar tíma sinn í að hjálpa fólki með vandamál sín. hann hefur hjálpað mörgum fjölskyldum úr krísu.......mér finnst hann vera nútíma hetja afþví að hann er snillingur í að greina vandamál og leysa þau..hann getur breytt árásagjörnum vinnuþjark í afbragðs heimilisfaðir:D..hann gætu meira að segja breytt Erlu Dís í afbragðs nemanda sem fær alltaf 10 í prófum og verður snillingur í stærðfræði þegar hún verður eldri.
Dr. Phil er fallegur maður og göfugur sem nýtir tíman sinn til að hjálpa fólki eins og Sigrúnu Lóu og mér sjálfum ef ég segji sjálfur frá. Dr. Phil er mín nútímahetja,
Gunnar Eyþór... Erla og Sigrún hjálpuðu við skriftir og leyfðu mér að nota sig í söguna mína
Bloggar | 28.4.2008 | 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hún mamma mín er nútímahetjan mín.
Hún átti mig mjög ung og sá um mig alveg ein og ja að mínu mati gekk henni bara mjög vel,og hún sá um okkur báðar í mörg ár þar til hún hitti mann og var með honum í nokkur ár og þau eignuðust Ása litla bróður minn en núna er hún aftur ein á báti með bæði mig og bróður minn og mér finnst hún algjör hetja og alveg rosa dugleg ,við erum ekki beint mjög auðveld við sistkynin.Og svo er það líka mjög mikil vinna og mikið púl í að vera einstæð móðir.Og aðalega þar sem hún er í 3 vinnum til að geta gert sem flest fyrir mig og ása og svo er notlega að sjá um heimilið o.s.f. Og hún hefur aldrei misst af neinu í lífinu mínu og hefur mætt á alla leikina sem ég hef spilað og hjálpað mér í gegnum mjög margt eins og með þegar að ég hef legið uppá sjúkrahúsi.
Og er að mínu mati alveg æðisleg manneskja.(en getur stundum verið svoldið erfið en það notlega fylgjir bara móðurstarfinu)
takk fyrir mig.!
Kolbrún Ösp <3
Bloggar | 28.4.2008 | 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugtakið nútímahetja er skilgreint á mismunandi vegu, hjá mismunandi fólki. Litlu börnin eiga það til að nefna fyrst Súperman eða aðrar yfirnáttúrulegar teiknimyndafígúrur en eldra fólkið hallast meira út í að hylla alls konar efnilega pólitíkusa, kóngafólk eða e.t.v. einhvern sem þeim þykir vænst um. Það er sama hvernig þetta hugtak er skilgreint, því við getum öll verið sammála um að þetta eru manneskjur sem snerta líf þitt á einhvern hátt, gegna veigamiklu hlutverki og eiga sess í huga þínum og hjarta.
Þegar ég hugsa til nútímahetju, kemur fyrst upp í huga mér manneskja sem hefur reynst samfélaginu vel með einstökum kærleika, hugrekki og hjálpsemi. Þessum titli fylgir mikil ábyrgð og ég er svo heppin að hafa kynnst manneskju sem axlar þá ábyrgð með prýði. Það er hún móðir mín.
Alveg frá barnæsku hefur hún verið mikill dugnaðarforkur og orkubolti í sínu daglega lífi. Hún fæddist í Súgandafirði að Vestfjörðum árið '66 þar sem hún lifði í faðmi foreldra sinna sem yngsta barnið af þeim 5 systkinunum. Henni gekk alltaf vel í skóla og á mínum aldri var hún að vinna í fiskinum frá eldsnemma að morgni til seint á kvöldin, og nýtti hádegishléið í að dreifa póstinum um allan bæ!
Hún kynntist pabba um tvítugt og með tímanum myndaðist þessi myndarlegi krakkaskari, fyrst Eva Sigurbjörg, ég 3 árum síðar og síðan tvíburarbræðurnir mínir, Jóhannes&Steinn, 2 árum seinna. Mamma sjá um okkur börnin heima á meðan pabbi vann á næturvakt til að halda fjölskyldunni gangandi, og þessar aðstæður reyndust svolítið erfiðar á tímum.
Við fluttumst á milli staða, þ.e. frá Reykjavík til Raufarhafnar og þaðan til Akraness, og höfum við búið hérna í um 8 ár. Mamma nældi sér þarna síðan í góðar vinnur og gekk afbragðsvel í þeim öllum. Núna vinnur hún Í Samtökum Atvinnulífsins í Reykjavík, er formaður skólanefndar og gengur í Sjálfstæðisflokk Akraness. Auk þess er hún húsmóðir heimilisins og er alltaf til taks fyrir okkur fjölskylduna sama hvað:)
Ég tel að við hljótum öll að eiga okkur einhvers konar nútímahetju, yfirnáttúrulega eða ekki. Að það sé einhver til staðar sem við lítum upp til og drögum dáð af, og reynum jafnvel að breyta okkur sjálfum og bæta til að líkjast viðkomandi.
Takk fyrir mig í bili.. Aðalbjörg Þorkelsdóttir
Bloggar | 25.4.2008 | 00:58 (breytt kl. 00:59) | Slóð | Facebook
Hver er hetjan mín? Hetja er einhver sem maður lítur upp til af einhverjum ástæðum. Hvernig persónan er. Lítur maður ekki hetjuaugum á þann sem hefur kostina sem maður hefur ekki sjálfur en þráir þó. Eða hvað ? Kannski lítur maður upp til þeirra sem manni finnst líkastur sjálfum sér en samt betri á einhvern hátt. Hetjan mín er bara hún sjálf og nýtur lífsins. Það er svo einstakt að geta verið maður sjálfur því það er enginn annar maður sjálfur.
Hetjan mín myndi vera jarðbundin og hógvær en samt ekki láta valta yfir sig. Hún myndi berjast fyrir og fylgja því sem henni finnst réttlátt en annars halda sig frá vandræðum og heimskulegum, tilgangslausum uppreisnum. Hetjan myndi vera á undan sinni samtíð í hugarfari og þó að hún sé öðruvísi en annað fólk þannig lagað þá ætti það ekki að hræða fólkið heldur heilla það. Hún myndi ekki íþyngja sér með neinum þungbærum hugsunum heldur njóta lífsins.
Hún er á undan sinni samtíð og hugsunarhátturinn er svo einfaldur en um leið þróaður flókinn. Hetjan mín er semsagt ekki til í lifandi lífi. Ekki svo ég hafi einhverja hugmynd um það að minnsta kosti...
Mér dettur þó eina í hug. Það er strákur sem er í rauninni öfugt við það sem ég lýsti fyrir ofan. Hann er mjög einföld persóna en hann er hugrakkur, góður, duglegur, jákvæður og róleg persóna. Hann er eins og hver önnur manneskja en sker sig útúr með einfaldri hugsun sinni sem er svo áberandi, því að hann er bara hann. Hetjan mín er Sómi í Lord Of The Rings.
-Margrét Snæfríður
Bloggar | 18.4.2008 | 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar