Færsluflokkur: Bloggar

Sumarfríið.

Það sem ég ætla að gera um sumarið er að ég ætla fyrst að fara í vinnuskólann fá mér smá pening og síðan ætla ég að reyna að hitta félaga minn hann Steinar Andra og síðan fer ég til Noregs til pabba sem er mjög gaman og síðan ætla ég bara að slakka á og fíflast með vinum mínum reyna að fara til reykjavíkur og heimsækja félaga mína þar og síðan ætla ég bara að reyna að byggja upp þolið mitt aftur svo ég ætla að reyna að fara meira í ræktina um leið og höndin á mér er kominn í lag en annars ætla ég bara að reyna að slakka á.

Kristófer Arnar.

 


Sumarfríið.?

Sumarfríið er að koma og maður er svona smá byrjaður að plana hvað maður ætlar að gera, en hjá mér jaa þá er nú varla mikið planað.En verð að vinna í sumar er ekki viss hvort ég ætli í vinnuskólann eða eitthvað annað,en svo er það náttúrlega bara að sóla sig og ferðast.Og svo er náttúrulega hellingur að ske í sumar það eru írskir dagar og hamingjudagar á Hólmavík sem að maður skellir sér auðvitað á og svo er maður auðvitað í víkingafélagi og það eru nokkrar hátíðir hjá því í sumar sem verður algjört æði.En jáá svo er bara ekki neitt annað planað, en mig hlakkar alveg rosa til að fá frí frá skólanum og bara fara út um allt og njóta mín í sumar. 

Takk fyrir mig.

  

Kolbrún Ösp                                       


Sumarfríið : O

Í sumarfríinu mun ég gera allveg hellings sko :D ég ættla í sólbað og verða brún haha 8) en jm veit ekki er að reyna finna mér vinnu er reyndar að fara á laugardaginn í prufu á galito eða svona vinna ein dag en já vona bara að ég fái þá vinnu því ég er ómögulega að nenna vinna í vinnuskólanum í sumar ; / það er svo ógeðslega leiðinlegt en ef ég fæ ekki vinnuna þarna í galito þá fer ég í vinnuskólan að púla í allt sumar : ( en svo ættla ég bara í sumarbústað og vinna og versla :D og jm alltaf að vera í heitapottinum og verða brún ,, það er markmiðið en jm ég veit bara ekkert hvað ég á skrifa meira en svona verður þetta og það er ábiggilega eitthvað meira að fara gerast nema ég bara veit ekki hvað :D en sko það er náttúrulega frakkland framundan og mig hlakkar geðveikt til en svo er ég líka að fara  á pendulum á næstu helgi en held að það sé ekkert meir . þannig ég segji bara bææj og já þetta er seinasta bloggið LoLLoLLoLLoL

hugrún eva .


ég veit það ekki alveg;O?

bless Cool

'rosalilja.

Amma mín og Afi

Einu sinni áttiég tvo hesta, þeir hétu Amma og afi. Þeir voru skemmtilegir apar tveir, þeir voru alltaf að fela sig í trjánum. Eitt sinn fór ég að labba og þegar ég kom aftur voru flóðhestarnir mínir komnir í fólabúrin mín og enginn hestur í augsýn nema einn röndóttur sem var í bardaga-karate búning. En því miður átti ég hann ekki þannig ég mátti ekki koma nálægt honum. Ég ákvað að fara að horfa á sjónvarpið og kaupa rúgbrauð af Vörutorgi meðan ég grét úr sorg. En helv Vörutorg var bara interruptað af eikkerjum feitum dreng með sleikjó í auganu til þess að segja hvað hann var ömurlegur. Er ég hlustaði á hann grenja um hesta heyrði tvö orð; "Ég er með hesta að nafni amma og afi í varðhaldi og ætla ábyggilega að drepa þau með nokkrum skeiðum sem ég geymi undur tárum mínum,,. Ég varð svo reiður að ég dansaði og söng Foot Loose söngleikinn með ýminduðu vinum mínum, Kyle og Jónasi. Á meðan ég dansaði í tunglsljósinu fann ég Stórann hval af hygmynd syndandi í djúpa bláa hafinu af snilld minni sem er að chilla í hausnum á mér. Ég fattaði að éf ég ætti tvær appelsínur gæti ég mögulega bjargað Titanic frá því að sökkva OG bjargað hestonum mínum á sama tíma. Ég fór því beinlínis til Lalla til að hann gæti blessað mig með kraft Stefáns. Þegar ég kom fyrir utan húsið þeirra Lalla og Palla ákvað ég að dansa smá til viðbótar því að ég heyrði að hann Palli var á klósettinu. Eftir dansinn skaust ég inn í húsið og talaði tungumál Lalla en því miður var bara Palli heima og han skildi bara ekki Lallísku. Ég sá hann vera á fullu með hollenskum dverg þannig ég lokaði augunu og ýmindaði mér að ég væri að dansa við smábarn sem var með áttta höfuð. Þeir sáu mig og öskruðu í C-tóntegund meðan ég var með lokuð augun. Dvergurinn hljóp til Hollands aftur á meðan ég confrontaði Palla. Palli sagði mér að Lalli hefði skroppið til Kína til að dansa við forsetann í Nígeríu. Ég þurfti þá bara að skella mér í það að fá blessun Palla en hann er bara svo LAMEEE að hann gat bara gefið mér spádómsköku sem breytir fólki í blá-græna úlfalda. Ég fór strax til Mongólíu til að berjast við stríðs-björninn Rúbbídúbabbadú.  Hann var með átta verði og einn túnfisk í vasa sínum þannig ég þurfti að vera með hjálminn hans magnúsar meðan ég öskraði í poka hundrað orð sem ríma. Ísbirnir hata þannig. Eftir bardagann sem entist í áttahundruð og níu mánuði í apríkósu árunum, sem eru níu mínútur á manna tíma, át ég túnfiskinn sem var í vasanum hans, sem öskraði hvar lykillinn að teleportinu var. En þið fáið aldrei að vita restina af því að ég át slæmt kex sem að fer í magann á mér og lætur mig gráta sýru.

Kv. Gísli og Bjarni 


Amma mín og Afi

Ég ætla að seiga ykkur frá Afa mínum og ömmu í stuttu máli: Þau eru bæði 90 ára og ég á langömmu. Amma mín spilar póker alla fimmtudaga og fer í fótbolta alla föstudaga, þá eru 2 dagar komnir, laugardaganna fer hún á tónleika, bíó eða að horfa á box. En sunnudagarnir. Þeir eru sko bestir, klukkan 12 tekur hún budduna sína, fer í hlaupa gallann og svo tekur hún powerade brúsann og fer á stað að kaupa brenni vín, þegar hún kemur, heilsar hún litla fólkinu og kaupir margt handa þeim, fer svo og sækir sér 3 flöskur af vodka, og það stórar. svo skokkar hún heim og sest í stólinn, sofnar í stólinum og vaknar klukkan 8 og drekkur sig til 1931 og dansar í 14 daga.

Amma og Afi

Afi minn vann mikið sem smiður og spilaði britz.Amma mín vann við eitthvað, þau búa bæði hérna á Akranesi í blokk.


Amma mín og afi

Afi minn vann lengi sem útvarpsmaður fyrir löngu síðan og var þá sá frægasti útvarpsmaður á Íslandi. Amma var lengi orgelleikari í kirkjum. Þau búa bæði í Rvk. jjjjjeeeeesssss.

 

Teitur...


Amma mín og afi?-

Amma mín og afi úr níðurætt eru bæði 66 ára gömul eða afi á afmæli 1 apríl og amma á afmæli einhvern timann i desember þannig að hún er ekki alveg orðinn66 ára.   Amma mín heitir Hanna Matthildur Benediktsdóttir og afi minn heitir Óskar Pálmi Guðmundsson og þau búa í Reykjavík.  Afi var að vinna ´jut á sjó en hætti fyrir nokkrum mánuðum og er bara aðeins að vinna hjá frirtæki frænda míns en hann ætlar á eftirlaun á næsta ári held ég.  Amma vinnur hjá einhverjum saumaklúbbi á laugarveginnum.  Afi á þrjú eða fjögur systkyni sem eru á lífi held ég en hann er lang yngstur en ég veit ekki hversu mörg systkyni amma á. Amma mín og afi úr föður ætinni eru skilinn en hann afi heitir Gunnar og er málari eða listamaður og amma heitir Þórunn og vinnur hjá einhverju elliheimili. Þau eru fimmtíu og eitthvað ára gömul bæði og alveg að verða sextíu ára.  Ég veit nú eiginlega ekki neitt um systkyni ömmu minnar og afa úr föður ætinni.  En amma er úr svona sveita ættum en ég veit ekki með afa.  Afi minn og amma úr móður ættinni eru held ég bara svona borgar fólk.  Ég hef samt ekkert meria að segja núna.                

 

                                                                                                                      Pálmi


Amma mín og afi

Amma mín í Englandi dó áður en ég fæddist en afi minn dó þegar ég var níu ára. Ég held að ég hafi hitt hann sex sinnum eða eitthvað svoleiðis þannig að ég var ekkert mikið að pæla í því þegar hann dó.

Hin amma mín og afi eru enn á lífi og í fullu fjöri. Amma mín er 55 ára og afi minn er að verða 57 ára þann 26. maí. Mér þykir mjög vænt um ömmu mína og afa minn og ég gæti eiginlega ekki ímyndað mér lífið án þeirra.

Amma mín og afi eiga heima á Lækjarmel 1 í Melahverfinu uppí sveit einhversstaðar í Hvalfirðinum. þau eiga fjögur börn og sex barnabörn. Afi minn vinnur á Grundatanga og amma mín er bara að rækta garðin og er með litla verslun með föndurvörum, henni finnst mjög gaman að föndra og alveg sérstaklega að prjóna á mig röndótta vettlinga.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband