Hetjur

  

Flestir eiga sér hetjur, hvort sem að það er Superman, einhver íþróttamaður, tónlistarmaður eða bara mamma og pabbi. Hér mun ég skrifa um mínar hetjur og hvernig þær urðu hetjur fyrir mér.

 

Þegar að ég var aðeins 6 ára sá ég bíómynd með leikara sem hafði mestu áhrif á líf mitt, myndin var Terminator 2: Judgement Day, og leikarinn var Arnold Schwarzenegger. Ég horfði á myndin tvisvar til þrisvar sinnum á dag nánast alla mína æsku og ég hafði sett mér það markmið í lífinu að verða eins og hann, og ég hélt að ég ætti alveg jafn mikla möguleika og hver annar, en árið 2007 komst ég að hræðilega sannleikanum sem ég hafði neitað að trúa...sterar. Arnold hafði ekki náð þessu náttúrulega heldur tók hann inn ólöglega stera til að ná þessum ótrúlega vexti sínum og aldrei myndi ég láta stera gera mig að því sem mig hefur ævilangt langað að verða, frekar myndi ég vilja vera lítill og steralaus heldur en stór steraköggull. Þannig að ég sneri mér að næst besta manninum, Sylvester Stallone, sem hafði tekið að sér hlutverk boxarans Rocky Balboa. Þessa mynd dáði ég og dýrkaði en viti menn, hann var líka tekinn með stera! Þannig nú var ég í klemmu, hver annar er hetja? En ef að maður lítur yfir þessar svo kölluðu hetjur sem við viljum svo mikið verða, eru þær eitthvað sérstakar. Nánast allir eru á fíkniefnum eða eru alkahólistar, steranotendur eða gera eitthvað hneykslanlegt sem kemur á forsíður allra slúðurblaða. Viljum við virkilega móta líf okkar eftir þessu? Allavega ekki ég. En ekki er hægt að vera án einhvers sem maður lítur upp til, en enginn hefur jafn mikil áhrif á mig og Arnold, þannig að ég er bara með nokkrar smáhetjur eins og Bruce Lee.

 

En ef ég myndi líta framhjá öllu því ranga við hetjurnar mínar myndu þær vera Arnold Schwarzenegger og Jón Páll. Þrátt fyrir að hafa drepið sig á steranotkun kemst Jón Páll á lista yfir hina miklu í mínu lífi.

 

 

 

 

Edward Ingi Torfason

 

 

 

 



Nútímahetja

Nútímahetjur svona spaterman ,superman,batman og kattarkonan fólk sem bjargar deiginum berjast við vonda kalin "vúhhú"  en svona í alvöru þá finst mér að mínu mati slökvuliðsmen ,björgunarsveitarmen og Lögreglan vera svona ein hverjar hetjur þó svo að þetta fólk sé ekki í flottum latexgalla og lemja ljótukallana heldur hjálpa þeir köttum niður úr tré og leiða gamlar konur yfir götu nei bíddu djók það eru skátarnir allavegana björgunarsveitin fara alltaf á stað þegar einhverjir heimskir túristar fara í göngutúr og tinast útí sveit og það þarf að fara að leita af þesum vesælis fíflum og þessi lögga ser um að passa að ulinga þífl eins og ég séu ekki að gera einhvern skandal

kv. Bernódus 


Nútímahetja! Baldur

Það er talið að hetjur hafi daið út með tímanum og þær hafi bara verið uppi fyrir krist og fram á miðaldir. Fólkr líka talið að nýtt fyrirbæri sé komið ,,nútímahetja". Er eitthvað til sem heitir nútímahetja maður spyr sig? Ég ætla nefna gott dæmi um eina nútímahetju.

Tilvonandi nútímahetja er Milljarðarmæringurinn Bill Gates, hann hefur sannað að það sé ennþá til gott fólk í þessum heimi. Fólk lítur á hann í slúðurblöðum og segir ,,þetta er nú bara enn einn eigingjarni milljónamæringurinn". Maður á ekki að dæma fólk fyrr enn maður kynnist því.

Bill Gates er maður sem á eftir að vera næsti guð í flestum þróunarlöndum, hans verður minnst í mannkynssögunni. Þessi ljúflingur ætlar að gef 99% af öllum peningum sínum til þróunarlanda þegar hann deyr. Hann mun þá gefa til landa einsog Afríku. Hann erfir börnin sín aðeins 0.5% hvert sem er allveg morðfjár. Ég vona að börnin hans hafi verið ánægð með með erfðaskránna.

Þetta er með merkar góðverkum sem ég hef orðið vitni af. Það væri fínt ef það væri til fleira svona fólk. Bill Gates er allavega meðvitaður um lífið í þróunarlöndum, sem fleri þyrftu að vera.

 


nútímahetja

Það eiga allir sína eigin persónulega hetju, ofurhetjur sem hafa bjargað lífi fólks og gert margt gott og gert það eftirminnilegt einhverjar manneskjur sem geta flogið og hafa einhvern ofurmátt.

 

Mín hetja er afi minn hann Reynir af því að mér finnst hann rosalega svalur náungi. Hann er hetjan mín vegna þess að hann bjó til mömmu og hann var saxafónleikari í hljómsveitinni Dúmbó og Steini. Hann er mjög fyndinn og það er alltaf gaman í kringum hann. Þó hann hefur ekki gert margt merkilegt í lífinu eða ekki mikið sem ég veit af en hann hefur alltaf verið rosalega hress, fyndinn og skemmtilegur.

 

Mér finnst afi vera geðveikt svalur. Hann er með svona skalla og spilar á saxafón og það er sko geðveikt svalt finnst mér. Ég er mjög stolt af því að vera barnabarn hans og ég man eftir því að þegar ég var lítil sagði hann mér að hann kunni ekki litalagið : gulur, rauður... og stafrófið og mér fannst það alltaf svo fyndið. Hann er hetjan mín af því að ég vil verða eins og hann af því hann er svalur saxafónleikari og ég er svo stolt af honum.

 

Hetjur þurfa ekki að vera með ofurmátt svo þær geta verið hetjur einhvers. Þó afi minn hljómi engin hetjudáð en þá er afi minn besti afi í heimi.

 

kv. óla bóla var að róla :D 


Nútímahetjur.

Ég þekki engar hetjur nema Batman og Superman. En ég tel þá engar hetjur, ég meina.. hver gæti ekki stukkið af húsþakið og flogið?! gosh.. Svo mín nútímahetjublablabal eru bara þeir sem hafa gengið í gegnum það sem ég gæti ekki ímyndað mér að ganga í gegnum. Ég vil nefna hann Halla minn t.d . Það sem þessi strákur hefur gengið í gegnum er ótrúlegt, en samt stendur hann ennþá beinn í baki og ber sig mjög vel. 

Tounge


Nútímahetja Svava:):*

Mín nútímahetja væru öruglega óvirkir alchoholistar og dópistar.

 

Þeir hafa allir fallið djúpt og sokkið alveg niður á botn,en flestir af þeim ná sér alveg heilum aftur. Alchoholistmi er algengur sjúkdómur hér á Íslandi.Að vera alki er alls ekki auðvelt, flestir af þeim eiga börn, menn, konur,hús og fleira,en missa það allt er þeir falla. Börnin afneita þeim alveg gjörsamlega , mörg þeirra verða þunglynd og ná sér aldrei aftur heilum. Þessi heimur er þeir lifa í er mjög harður , þú hugsar bara "hvernig kemst ég í gegnum daginn", hvernig kemst ég í gegnum nóttina og allt þetta er sko alveg þvílík erfiðisviðbjóður , þú velur ekki að verða svona þú bara verður svona ,reynir að redda þér pening því bankarnir loka á þig , stundum eru þeir mjög svangir en bara geta engann veginn snúðið heim aftur og gera börnunum sínum það að láta sjá sig svona, þó þeir vilja alveg endalaust mikið hitta greyjið börnin sín sem gráta á hverju kvöldi er krumlan svo ströng.

En þrátt fyrir það þá reyna þeir allir að snúa heim aftur eftir að hafa verið í burtu í hvað þrjú ár ? eitt ár ? tvö ár? sautján ár? enginn veit hvenær að þeir koma ... og stundum koma þau bara alls ekki aftur , ég get ekki sagt ykkur frá því hversu margir hafa einfaldlega dáið úr alcaholistma, og vildu ekki fara þannig, fengu ekki að kveðja börnin , fjölskylduna , hundinn sinn jafnvel , það er alveg sama þeir fóru og þeir höfðu enga kostra völ. En þegar að þeir snúa aftur lifnar þessi dauða rós sem dauð var innra með þeim , þeir fara í meðferð og verða sterkari og sterkari með hverjum deginum.

 

En þessi tilgangur með þessari ritun var sá að þeir ,alkarnir sem verða edrú er algjörar nútímahetjur , ekki bara nútíma heldur fyrir nú og eftir , eru og verða alltaf.


Nútímahetja mín

Nútímahetja

 

 

Ég ætla að tala um nútímahetju sem er:

FREYR GEIRSSON!!!!

 

Freyr geirsson er maðurinn....

Hann er leiklistabrúða sem hinni gaf mér í jólagjöf...

Þegar mér leiðist þá finn ég Freyr og hugga hann og gef honum mjólk að borða....svo förum við út að leika okkur með boltann sem langa afi minn gaf mér í jólagjöf árið 1957...

Það var gleðistund, og enn er ég að leika mér við hann með Freyr geirsson,

Ooooooo hvað Freyr er svo sætur þegar hann er reiður.

Mér finnst að allir ættu að eiga sér leikjabrúður og bolta sem langa afi gaf sér í gamladaga.

Vegna þess að það eru allir að væla yfir bensín hækkuninni,

Ef allir ættu sér leikjabrúðu og gamlan bolta þá getur maður bara farið út og leikið sér með þá í stað þess að væla og væla yfir bensíninu og fara út að sparka í rúður og kveikja í ruslatunnum...hella skyri yfir foseti  og gríta bensín stöðvarnar...

Allavega ég á mér LÍF!!! OG ÉG Á FREYR GEIRSSON

 

 

THE END

 

 

 

kveðja: Jón BergurNinja

Nútímahetja - PállS

              Ritun

 

Hvað er það að vera hetja? Það eru til nokkrar týpur af hetjum. Mér finnst hetja vera þannig að hún, geti allt, kann allt og er alltaf til stafar ef manni vantar eitthvað. Ef Fólk þarf hjálp þá mætir hún. Önnur týpan er sú að, ef hún er rosalega sterk og góð manneskja er hún hetja, t.d ef hún sigrast á krabbamein, eða alvarlegum veikindum það er líka að vera hetja. Ég ætla að koma með dæmi um nútíma hetju, mann sem ég veit um sem lifði að bílslys.

 

Sá maður lifði að bílslys, sem var sagður dauðadómur. Þetta var hreint ótrúlegt að maðurinn skildi lifa þetta af, hann var að koma úr partýi með vinum sínum, og það keyrði á hann jeppi og þeir voru á litlum fólksbíl. Hann var með 3 vinum sínum, maðurinn sem keyrði var undir áhrifum. Það var enginn af þeim í belti og allir 3 vinir hans létust þetta kvöld. Hann var eini sem lifði þetta af, en það er samt ennþá, skrámur og ör. En hann er auðvitað ánægður að hafa lifað þetta af, en hann er að enn að reyna takast á þessum bestu vinum hans, sem létust þetta kvöld. Þetta er bara hræðileg lífsreynsla. Þessi maður er hetja í mínum augum.

 

Það er ekki spurning að þessi maður sé hetja, hann er hreint út sagt hetja.             


Nútímahetjan

Margir detta kannski í hug "Batman" og "Superman" því þeir eru alltaf að bjarga einhverum og koma ég veg fyrir alskona slys en því miður eru þeir ekki raunverulegir. Hverjar eru hetjurnar í samfélaginu í dag? eru þær löggurnar, sjúkraliðarnir eða ruslakarlarnir

Löggurnar eru auðvitað að bjarga fólki og taka vondu karlana fasta, svo þeir geta alveg talist hetjur og líka sjúkraliðarnir þeir eru einnig að bjarga fólki. Menn gætu ekki lifað án ruslakarla, hvernig væri heimurinn án þeirra? Allt væri í rusli einsog er einmitt á Ítaíu um þessar mundir.

Að mínu mati eru það ruslakarlarnir, Þjónarnir og Gerrard sem eru hetjur hversdagsins. 


Nútímahetja - Símon

Michael Francis Moore er maðurinn sem að ég ætla að skrifa um. Mér finnst hann bara algjör hetja og hefur unnið marga titla fyrir sínar myndir. Hann var líka á top 100 lista Time Magazine fyrir mest áhrifamesta fólkið. Heimildarmyndirnar hans eru bara geðveikar, til dæmis Fahrenheit 9/11, Sicko, Bowling for Columbine og fleiri. Hann hefur bara látið fólk átta sig á hlutum sem það vissi ekki um og látið margt koma í ljós.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband