Lögregla leitar enn Einars sem er grunaður um að myrða Holberg í norðurmýri um seinustu helgi. seinast þegar einar er 1.80 á hæð og er hann í brúnum frakka og svörtum buxum og gráum skóm með derhúfu.
Eru myndir af honum á öllum flugvöllum, rútustöðvum og strætó skýlum. Er haldið að hann er en þá á höfuðborgarsvæðinu. Ef einhver hefur séð til einar endilega tilkynna það ti lögreglunar í reykjavík í síma 400-4000.
Holber var myrtur hrillilega á laugardaginn seinasta um 4 leitið í íbúð sinni í norðurmýri 46
Unnar
Bloggar | 14.2.2008 | 13:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

Það var nú í kvöld u.þ.b. klukkan 22:30 - 23:00 sem komu upp þær upplýsingar um nauðgun. Það var maður að nafni Holberg sem nauðgaði konu sem var u.þ.b. 23 ára í eldhúsi einu, og þegar nauðguninni var lokið fór hann með hana heim til hennar og nauðgaði henni í sínu eigin rúmi. Þegar seinni nauðguninni var lokið var hann að fara og hótaði henni frá að "ef þú segir lögreglunni eitthvað þá kem ég hingað aftur og kvel þig verr." Þegar hann var farinn var konan auðvitað grátandi og hrædd, en þremur vikum kom hún til lögreglunnar og tilkynnti nauðgun á sjálfa sig, en þegar það var heyrt um þetta fór fullt af fólki að skoða þetta mál og tveir menn fóru heim til hennar og leituðu að sönnunargögnum en fann engin því hún þreif allt fram og til þegar hann Holberg fór eftir nauðgunina.
Og nú erum við hér með rannsóknarlöggu manni og hann segir þetta "Þetta er auðvitað sárt að verða fyrir svona og það er bara rugl að gera eitthvað svona líkt, svona mál er grafaralvarlegt, þessari konu var nauðgað tvisvar!, það er alveg hræðilegt, og þegar maðurinn fannst var búið að myrða hann í sinni eigin íbúð, þannig að þetta er verulega erfitt mál hjá okkur í lögreglunni."
Þetta var Erlendur Rannsóknarlögreglumaður, ekki meira um það!
Bjarni Kristinn

Bloggar | 14.2.2008 | 13:29 (breytt kl. 13:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Líkið. Tveir ungir drengir fundu lík í gærkvöld, Maður að nafni Holberg um það bil 70 ára. Hann var myrtur með öskubakka, þungt högg í höfuðið með þessum stóra öskubakka er orðsökin á dauða hans. Lögreglan mun fara að rannsaka þetta dularfulla mál. En bara eitt annað subbulegt tíbíst íslenskt morð. Þetta gerðist þennan ofboðslega rosalega dag, veit ekki af hverju en samt, þetta gerðist í mýrinni í Reykjavík eitthver staðar, en ég er Rósharðu eingilbert haurt ingimundarson+
Önnur saga, maður fannst myrtur að nafni Grétar ekki var fundið aldur hans en hann var myrtur á sitthvern hátt, hann var fundinn undir gólfi heima hjá Holbergi manninum sem var myrtur, kannski eru tengsl á milli þeirra, 10 dögum seinna var fattað að Grétar, Holberg og maður að nafni Elliði voru vinir og voru ekki góðir menn. Þeir voru kærðir fyrir að nauðga konu en maður að nafni Rúnar, fyrirverandi Lögreglu maður var fljótur að loka málinu og er haldið að hann hafi verið með þeim í þessu öllu.
kv: Kristófer Ernir
Bloggar | 14.2.2008 | 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lögreglumaður að nafni Erlendur fann lík af manni að nafni Grétar undir gólfi í íbúð sem að hann Holberg átti heima í. Holberg var ný dáinn og þetta lík var fundið meðan það var verið að rannsaka dauða Holbergs. Grétar var búinn að vera dauður í holræsi (þessu sem maður kúkar í =)) í 30 ár! (ýmindið ykkur lyktina, kombó af 30 ára gömlum skít og rotnunarstybbu) og allir rannsóknarmennirnir voru alveg að kafna úr skíta/rotnunar fýlu. Ekki er enn vitað hver myrti Holberg. Hinsvegar er maður að nafni Einar grunaður um morðið. Hann er hvítur maður með skegg alveg niður á rass. Holberg var maður sem átti engin börn eða neitt til að skilja eftir sig. Líkið fundu 2 litlir krakkar sem voru bara eikkað að leika sér þarna í einmana táfýlu íbúð. Alger tilviljun ekki satt? Hann og vinir hans voru víst ákærðir um hópnauðgun en þeir unnu málið. Seinna framdi nauðgunarfórnarlambið sjálfsmorð.
Gísli versti júrnalisti í heimi (samt sökka þeir feitt nema þegar hann er að skrifa)
NINA POWAHH
Bloggar | 14.2.2008 | 13:15 (breytt kl. 13:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Já í dag meigum við bara blogga frjálst! Ég blogga bara um það sem kemur upp í hugann núna! Núna kemur uppí hugann á mér öll þessi vandræði úti í heimi. Á hverjum einasta degi þegar ég er að skoða slúðrið
er alltaf einhver frétt um hana Britney vinkonu okkar... Satt að segja er ég orðin svolítið MIKIÐ þreytt á þessu endalausa blaðri um að hún sé úti að versla á kvöldin, mæti ekki í dómsal þegar forræðisdeilan hennar er og að hún sé komin inn á geðdeild. Frá því að hún og Kevin Federline skildu fyrir rétt rúmu ári og hún rakaði á sér hárið hefur öruglega komið ein frétt á dag inná þessar slúðursíður. Það er bara algjörlega ofar mínum skilningi af hverju hún tekur sig ekki á og fer í meðferð og fær börnin sín aftur! Af hverju, fyrst hún er búin að missa börnin sín, fer hún ekki í meðferð eða hvað sem virkar handa henni og tekur sig saman í andlitinu? Ég hélt nú að móðir sem er búin að missa börnin sín myndi gera allt til að fá börnin aftur og af hverju mætir hún ekki í dómsal þegar þessi forræðisdeila er!? Vill hún kannski ekki fá börnin sín aftur eða? Núna er ég einmitt að kíkja inná People.com, slúðursíðuna, hver haldiði að fyrsta fréttin sé, já þið giskuðuð rétt, það er hún Britney! Og fyrirsögnin; Lögfræðingarinir (hennar) hittast fyrir yfirheyrslu Britney. Þeir eru semsagt að hittast á svona "neyðar" fundi í dómsal út af henni og út af henni var sleppt snemma af geðdeild. Og þetta er bara til þess að ákveða framhaldið. En þetta er nú samt ekki alfarið Britney að kenna sko. "Papparazzarinir", ljósmyndararnir og slúðurpressan þarna ytra hefur nú átt mikinn þátt í þessu líka, sem er náttúrulega sorglegt. Ég held að þau þarna; slúðurpressan séu líka bara að hluta búin að skemma líf hennar
En Britney ef þú sérð þetta "call me" eða allavega einhvern því þú þarft hjálp
Inga Sara;*
Bloggar | 8.2.2008 | 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er frjálst í dag og ég veit ekki hvað ég á að skrifa, svo að ég skiifa bara hvað ég er búin að ger í dag, sem er eiginlega ekkert, vaknaði snemma í morgun, fór á sundæfingu og svo bara heim að borða og þannig og svo þurfti ég ekki að fara í skólann fyrr en klukkan níu, þá var samfélagsfræði og við fórum að horfa á Grease við kláruðum hana og hún var bara mjög skemmtileg, svo horfðum við smá á danska mynd sem heitir Anja og Viktor. Eftir frímínúturnar var stærðfræði, það var bara fínt. Núna erum við í íslenskutíma að blogga. Svo er enska eftir hádegi og svo náttúrufræði og ég er búin í skólanum klukkan 15:15. En ég hef ekkert meira að skrifa um, bless:D
Bloggar | 8.2.2008 | 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sanngirni. Hvað er sanngjarnt. Vandamálið við sanngirni er að það er túlkað á svo mismunandi hátt. Eins og með foreldra þá er umræðan örugglega oft sanngirni. Hvað er sanngjarnt. Hvað má hún/hann vera lengi úti? Hvernig bregðast þau við því að við viljum vera lengur úti eða eitthvað? Ég þekki alls konar foreldra sem leyfa börnunum að vera eins lengi úti og þau vilja, eða drekka eða allan fjandann. Hvað er rétt í svona aðstæðum? Ég hef oft pælt í því hvað ætli sé sanngjarnt.
Af hverju förum við ekki eftir útivistatímanum sem eru reglur? Útivistatíminn er til 10 og fer einhver eftir því? En þegar útivistatíminn er einfaldlega horfinn á 16 ára aldri þá á ekki að fara eftir þeim reglum því þá búa foreldrar til nýja reglu. Útivistartími á hvert barn. Einhver þeirra er jafnvel 10 eða 11 eða 12 eða bara um hánótt, alveg sama...
Ósanngirni fer svo mikið í taugarnar á mér og ég verð virkilega reið þegar ég verð vitni að því eða lendi í því að finnast eitthvað ósanngjarnt gagnvart mér. En það eru bara mínar hugsanir og öðrum finnst það jafnvel sanngjarnt sem mér finnst ekki. Hvað er þá sanngjarnt? Ég held að þegar það kemur að foreldrum og börnum þá sé það traust sem skiptir mestu máli. Að treysta dóttur sinni og gefa henni leyfi til að vera úti fram á laugardagsnótt og treysta því að hún viti alveg hvað hún er að gera. En veit hún það?
Að geta talað saman er mjög góður eiginleiki þó það sé oft frekar erfitt. Ef ég fengi strangar reglur inná mitt heimili sem mér fyndist ekki sanngjarnar þá myndi ég fá sterka löngun til að brjóta þær. Jafnvel ef ég myndi fara eftir þeim þá myndi ég örugglega byrja á því þegar ég kemst útúr reglufangelsinu að brjóta allar reglurnar sem áður voru reglur og láta öllum illum látum. En þegar ég hef traust þá hef ég eitthvað sem ég vil ekki missa því þá hef ég vonir bundnar mér. Það er óþægileg tilfinning að vera vonbrigði.
Ég á vinkonu sem á foreldra sem eru með mjög lausar reglur. Hún er ekki verri manneskja fyrir það og hún er ekki í rugli og líður vel að mér skilst. Skiptir það ekki mestu máli?.. Allir hafa rétt fyrir sér, er það ekki.. Allavega ég vildi bara tjá mig um þetta því ég hef hugsað eitthvað um þetta í sambandi við aðallega eitt en önnur mál og ég veit ekki enn hvað er rétt og hvað er rangt.. eða hvað er sanngjarnt.
-MaggaS.
Bloggar | 8.2.2008 | 12:13 (breytt kl. 12:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
það er svolítið erfitt að skrifa um eitthvað en ég skal reyna ég ætla að skrifa um svolítið fyndið sem gerðist á leiðinni úr sundi í morgun það er snilld. skooo..... ég var eitthvað að reyna að henda snjóbolta í Ingu Söru en hitti ekki þá snéri hún sér við og sagði við mig "ekki, þetta er blaut" ég hélt ég mundi deyja þetta var svo fyndið GUÐ ég grenjaði næstum því.
ég vildi bara deila þessu með ykkur.
Bloggar | 8.2.2008 | 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég ætla að blogga um Ace Ventura xD sem er svalasti maður í veröld bíómynda xD. hann er dýra ransókknar maður einhvað kjaftæði xD. mér finnst hann flottastur því hann labbar alveg æðislega og á sér fáránlegar settningar eins og þegar hann leggur bílnum sínum segir hann alltaf Like a glove, og þegar hann spyr fólk að einhverju segir hann alltaf alrighty then áður manneskjan nær að svara, og loohooseher xD. svo gengur hann í Röndóttum buxum og einhveri svaka skirtu eins með pálatrjám og páfagaukum og einhvað svoleiðis xD. og hann gerir líka fáránlega svipi þegar hann talar. og svo hárið brjálað doo sko xD. ALRIGHTY THEN I AM DONE!!
Bloggar | 8.2.2008 | 12:10 (breytt kl. 12:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Búðir sem selja kvikmyndir á stafrænum geisladiskum geta verið undraverðar eða bölvun. Það sem er allra verst við þetta allt saman, að mínu mati, er sú að sumir DVD diskar eru seldir annað hvort textalausar eða bara með norskum, dönskum, finnskum eða sænskum texta. Ég verð aðallega var við þetta í stórverslunar keðjunni Elko, ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta er verslun frá norðurlöndunum en það getur nú varla verið mikið mál að troða að minnsta kosti enskum texta. Það færir okkur að íslenskum textum. Þeir eru enn ein léleg tilraun á að íslennska ensk nöfn. Nöfn sem eru ekki íslensk á ekki að fallbeygja, mér finnst bara fáránlegt að segja 'Til Toms' í staðin fyrir að segja það eins og mér finnst að það ætti að vera 'Til Tom'. Þetta er ekki nafn sem hægt er að beygja á frummáli þannig af hverju að færa það yfir á íslenskt mál og fallbeygja það? Ég fór í Elko í Skeifunni fyrir stuttu síðan og keypti mér 'Pulp Fiction' og án þess að spá eitthvað í það sem skipti máli þá keypti ég hana og er ég er kominn heim tek ég plastið utan af henni og set hana í spilara sem er gerður til að spila þessa gerð diska og svo byrjar myndin og ég flakka í gegnum textavalið...NORSKUR DANSKUR FINNSKUR OG SÆNSKUR. Ég þoli ekki að þurfa að einbeita mér að því að hlusta á hvert einasta orð sem lekur útúr munninum á einhverjum málhaltri persónu í bíómynd en ég verð að sætta mig við það í þetta skipti. Og ég tala nú ekki um ef að myndin er á dönsku! Í eigu minni er danska myndin 'Pusher'. Á þeim disk er enginn texti þannig að ég veit ekki hvað er í gangi, þannig ég giska bara að löggan sé á eftir honum og nær honum en skil ekki af hverju hann fór ekki í fangelsi vegna þess að hann var augljóslega með fíkniefni í höndunum!?!
jæja þá tel ég vera komið nóg af textalausu rugli, ég kveð í þetta sinn. Edward
Bloggar | 8.2.2008 | 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrirmæli frá kennara
Verkefni
Ritunarverkefni frá kennara
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar