Til hvers eru skólaböll - ég skal segja ykkur það

Skólaböll eru fyrir nema til að skemmta sér, þau auka sambönd milli  brekkó og grundó og bæta félags- og einkalífið, svo er líka alltaf gaman að fá að kynnast fullorðinslífi

- Jóhann Devil


Til hvers eru skólaböll?? það er nú spurning

Jæja til hvers eru skólaböll!
Skólaböll, skólaböll og skólaböll

Þau eru bara svona svo við getum skemmt okkurGrin öll saman og dansað. Og líka svo Grundaskóli og Brekkubæjarskóli geti verið samanm, þetta er nú sitt hvort skólinn þannig að.
Þetta eru bara aðalega til skemmtunar fyrir unglingastigið í báðum skólunum.
Æji ég veit ekki meira um til hvers skólaböll eru kannski til þess að við förum frekar á skólaböll heldur en partý sem er áfengi og eitthvað ógeð það gæti reyndar líka verið.

 

Maríanna

 


Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Þessi málsháttur þýðir að þú skalt gæta að því hvað þú segir. Þú átt ekki að tala niðrandi um aðra. Það getur sært fólk og þá ert þú ekki góð manneskja skamm skamm. Þú átt að vera góð/ur við fólk. Því það sem þú segir eða gerir gæti skemmt fyrir þér einhvað sem þú ætlar að gera í framtíðinni.

 

Hér kemur dæmisaga um hvernig það getur virkað illa að tala einhvað án þess að hugsa ef að þú móðgar einhvern sem er alveg búinn að fá upp í kok af þér þá er það mjög líklegt að einhver bara eigi eftir að berja þig því að það er alltaf einhver sem fær nóg af því að vera strítt og bara rís gegn stríðni eða móðgunum og berst til baka. Þú ræður hvort þú verður Devil eða Halo.

 Heiðar Kveður


Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Aðgát skal höfð í nærveru sálar þýðir að maður á að virða náungann og gera hvað sem maður getur til að særa það ekki, T.D. vinur minn sem á heima á Egilstöðum, það var venjulegur skóladagur og hann kom seint í skólann mjög sár og fúll, þar sem hann var þessi mjög hressa típa spurði ég hann "Vó hver dó" hann fór í fílu og hljóp út, þá hefði náin ættingi hans dáið, þetta er mjög gott dæmi um að hugsa áður en maður talar.

 Eins og þegar fólk er að baktala annað fólk og setja út á áhugamál þeirra því baktöl geta auðveldlega komist til fórnarlambs þess og sært mjög mikið, og þegar fólk er að gera grín að áhugamál getur sært fólk og leitt þau til að gera hluti sem það vill ekki gera, eins og að breyta öllu lífi sínu bara til að líta vel út hjá vinum sínum, byrja að reykja til að líta vel út, og svona.

Svo má maður ekki ganga um og særa fólk eins og að segja "Vá hvað þetta eru ljót föt" eða bara gera grín að fólki yfir höfuð. Þetta er mín sýn á þessum málshátt

 

- Jóhann Devil


Aðgát skal höfð í nærveru sálar- Frans Jósef

Mín útskýring á málshættinum ,,Aðgát skal höfð í nærveru sálar" er bara sú t.d. ef þú villt að einhver sé góður við þig þá þyrftir þú að koma vel fram við aðilann sem þú villt að sé góður við þig eða öfugt ef þú villt einhver sé óvinur þinn þá skaltu bara koma fram við hann eins og hann sé ,,Skítur á vegnum"Wink

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Okei í firsta lagi hef ég ekki hugmynd hvað þessi málsháttur þýðir þannig að ég þarf svona aðeins að hugsa okei.
Það sem ég held að Aðgát skal höfði í nærveru sálár þýðir að bara að allir finna til og maður á ekki að særa neinn. Maður á að taka tilits til allra manneskja af því allir hafa tilfinningar. Maður á ekki að bakatala fólk ef maður segir eitthvað sem særir aðra manneksju þá er mðaur ekki að hafa aðgát skal höfð í nærveru sálar. Maður á ekki að segja kjaftasögu vegna þess að enginn vill að það kemur saga sem særiri einhvern og manneksjan sem segir kannski þessa sögu, vill öruglega ekki að það komi einhver kjaftasaga um hann/hana um það sem gerðist fyrir manneksjuna um kvöldið, manneksjan mundi pottþétt særast, vera fúll og reiður. Maður á bara að koma fram við aðra eins og maður vill að aðrir komi fram við sig það er bara þannig.
Hérna er t.d. eitt dæmi ef einhver stelpa í bekknum væri búin að kaupa sér flott föt henni finnst þau kannski rosalega flott, en síðan kemur einhver strákur uppað henni og segir ojj hvað þau eru ljót, þá er maður sko ekki að hafa aðgát í höfð í nærveru sálar ef manni finnst kannski eitthvað ljótt þá á maður að sleppa því að segja það og hafa það bara útaf fyrir sig það er best því þá er maður ekki að særa neinn. 

 

Sjáumsta

Maríanna..

 


,,Aðgát skal höfð í nærveru sálar".

Aðgát skal höfð í nærveru sálar það er að maður á að passa sig á hvað maður segjir. það er ekkert grín að gera vera að baktala aðra að gera grín að þeim t.d að segja að þau seu feit i eihverju eða ljót i einvherju, eða segja að það sé of mjóg i einhverju þetta er ekkert grín það er hægt að særa fólk með mörgu sem fólk tekur illa i sig og getur liði mjög illa t.d ég hef oft lant i þessu þetta er ekki gaman að lenda i svona :S

 - Jóna


Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Aðgát skal höfð í nær veru sálar þýðir það að maður á að fara varlega þegar maður er nálegt öðrum og vera tillitsamur gagnvart öðrum og vera ekki að setja út á aðra um hvort hann lýti út fyrir að vera feitur í einhverjum fötum eða kjólum. Og bera alltaf virðingu fyrir öðrum og vera ekki að tala illa eða vera að slúðra um einhvern ákveðin aðila. Fara varlega þegar þú ert nálægt öðrum t.d. einhverjum sem er veikur eða þegar einhver vinur þinn er kannski nú búinn að missa einhvern náinn ættingja. þetta er mí skýring á þessum málshætti

-Nína-


Aðgát skal höfð í nærveru sálar. /Símon

Það á ekki að tala illa um fólk innanum einhverja aðra sem gætu heyrt það, bara þegar það er enginn í kring. Svo áttu að taka tillit til annara og ekki vera dónalegur.  Því miður þarf ég að fara núna, bæ :)

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Eimitt það sem ég sagði. Hef ekki hugmynd um hvað þetta þíðir og mér er nákvæmlega sama um þetta. Hehe. enn hvað með það. þá ætla ég bara eitthvað að rugla í þessu og segja bara það sem mér fynnst um þetta. Ég held að þetta þíði að maður eigi að velja kvernig maður kemur framm sama hvað aðrir gera. Passa sig að segja ekkert ljótt um aðra eða baktala þá. þú verður að virða þig og þá sem eru í kringum þig. verður að passa hvað þú ert að segja. Ekki segja neitt neikvætt um aðra manneskju því að hún hefur tilfiningar allveg eins og þú.  Ef þér finns leiðinlegt þegar eitthver talar illa um þig ekki tala illa um manneskjuna til baka því að það gerir það ekkert betra.

Kv Lýður a.K.a lilli Superman  Bandit


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband