Hvenær verður fólk fullorðið

Áður en maður verður 13 er maður ennþá krakki í augum annarra en eftir fermingu (i sumum tilfellum Bar Mitsvah) ertu orðinn táningur síðan eftir nokkur ár verðurðu unglingur alveg þangað til að þú færð að keyra og getur keypt  þér áfengi þá ertu loksins orðinn fullorðinn (í augum annarra aftur) en sumir sem eru orðnir nægilega gamlir enn eru ekki nægilega þroskaðir andlega eða líkamlega fá ekki endilega öll þessi leyfi en eru samt taldir fullorðnir.Mér finnst að þroski persónu ætti að vera talinn með þegar reiknað er hvenær hann fær öll leyfin sín með aldri og þeir sem þroskaðri eru geta ekki fengið leyfin skemmra en hinir, en þeir sem óþroskaðri (t.d. þeir óábyrgi sem drekka eða reykja a svona ungum aldri talið með líka) eru verða að bíða lengur um svona 1-2 ár eða meira.

Þetta er mín persónulega skoðun á málinu


Bjargmundur. E. E. 


Hvenær verður maður eiginlega fullorðin??..

Hvenær verður maður nú fullorðin??
Það er nú spurning sko, mér finnst að þegar fólk er fullorðið þegar það er t.d. komið með góða vinnu og er farið að búa eitt eða með einhverjum öðrum.
Líka þegar það er bara farið að geta tekið ákvarðanir í lífinu, ákveðið þú veist hvað er bannað og hvað má gera. Þegar maður er fullorðin þá er maður ekki með stæla og rífandi kjaft við alla og þú veist að reyna vera betri en allir aðrir.
Ef maður er farin að gera eitthvað að þessu þegar maður er orðin 18-19 ára þá finnst manneskjan vera fullorðin annars ekki.

Fullorðið fólk hefur líka tilfinningar eins og við hin þannig að tilfinningar hafa eiginlega ekkert að segja hvort maður sé fullorðinn eða ekki mér finnst það allavegana.

Það er alltaf að segja að maður sé fullorðin á þessum aldri sem við erum á núna unglingsárunum og það er sagt að við séum of stór til að gera hitt og þetta og of lítil til að gera hitt og þetta Wink þannig að við erum ekki fullorðin fyrr en við erum orðin 18-20 ára það fer náttúrulega allt eftir þroska og hvernig maður sjálfur er.  Og líka hvernig félagsskap maður er í ef maður er í slæmum félagskap er maður ekki eftir að enda vel í lífinu nema ef maður sé ekki að vera eins og hinir.
Ef maður er duglegur í skóla í grunnskóla og í framhaldsskóla er manni önuglega eftir að ganga mjög vel í lífinu. 

 

Maríanna is out..


Hvenær verður fólk fullorðið?

Þú verður allavega sjálfráða þegar þú ert orðin 18. ára en hvort þú verður talin vera fullorðin er bara misjafnt eftir því hvernig þú hagar þér og hvernig þú kemur fram við aðra í kringum þig. En í félagslíf er að sagt að þú verið ekki fullorðin í því fyrr en þú ert orðin svona í kringum tvítugt en það er líka bara misjafnt hvernig fólk þroskast og hvernig það er í framkomu í félagslífinu. Flestir telja að þú ert orðin fullorðin þegar þú ert eitthvað tvítugt, en það er sagt að þú ert komin í fullorðin manna tölu þegar þú fermist en samt ertu ekki orðinn fullorðinn!!

-Nína-


Hvenær verður fólk fullorðið?

Það er sagt að þegar maður fermist 14 ára gamall sé maður kominn í fullorðinna manna tölu. Ekki erum við fullorðin þá?

Við verðum lögríða 15, er það þá ekki ákveðið fullorðinsstig? þá er líkaminn greinilega fullþroska í kynlíf. Og ég meina kynlíf var upprunnanlega hugsað til að búa til börn, og það eru fullorðnir sem gera það, þannig erum við ekki fullorðin 15 ára?

Svo fáum við bílprófið 17, þá erum við greinilega orðin það fullorðin að þurfa að komast á milli staða sjálf og redda okkur sjálf. Það myndi enginn láta barn fá bílpróf, þannig við hljótum að vera fullorðin 17.

Og svo fáum við sjálfræði 18, þá greinilega erum við andlega fullþroska því við megum taka okkar ákvarðanir sjálf og ráða sjálf yfir okkur, ég veit nú ekki betur en það er akkúrat það sem fullorðnir gera.

Eða er það kannski 21 árs? allavega lagalega er það þannig, og oftast líkamlega líka, ég meina það er sagt að líkaminn sé fullþroska til að neyta áfengis þá, þannig hann hlítur að vera fullþroska fyrir flest annað líka. Á lífsleiðinni uðrum við semsagt 5 sinnum fullorðin, þannig að geta keypt áfengi 21 árs er ekkert merkilegt, því við urðum fullorðin fyrir 4 skiptum.

Við erum að fá allskonar mismunandi upplýsingar frá mismunandi áttum, er ekki bara hver áfangi af þessu sem ég var að telja upp er eitt skref áfram að verða fullorðinn.
En hvað veit ég? ég er bara 15 ára, enginn tekur mark á þannig krökkum, samt komst ég í fullorðinna manna tölu fyrir hvað, 2 árum þegar ég fermdist.

ákveðið ykkur lög, hvenær verðum við fullorðin?

 

salka kveður að þessu sinni
hittumst heil


Fullorðinsaldur!

Fólk verður lagalega fullorðið um 18 ára aldur og verður bæði lögráða og fjárráða. Þá ertu svo heppinn að geta gert nærri allan fjandann t.d. að reykja, en þú getur ekki drukkið fyrr en þú ert 20 ára.

Þegar þú ert einhversstaðar í kringum 20 ára ertu orðinn alveg líkamlega fullorðinn og þú stækkar nú eiginlega ekkert meira þá ertu orðinn alveg líkamlega fullorðinn.

En í gamladaga varstu tekinn í fullorðinsverkin um fermingu.

En fyrir mér miðast fullorðinsaldur þegar þú getur tekið réttar ákvarðanir sjálfur. Þannig að fólk er orðið fullorðið þegar það er búið að ná réttum andlegum þroska. Þannig hjá mér gætir þú alveg verið talinn fullorðinn um 14 bara ef þú getur tekið réttar ákvarðanir og hagar þér eðlilega.

Þetta snýst ekki um lögin, líkamlegan þroska eða einhvað þess háttar. Heldur hegðun, skynsemi, rökhugsun og andlegan þroska.

Þannig ef að þú telur þig fullorðinn prófaðu að axla smá ábyrgð og sjáðu hvernig þér tekst. Þú gætir t.d. fengið þér vinnu og reynt að læra að eiga peninga en ekki eyða því bara samstundis í einhverja vitleysu. En þetta er bara mín skoðun og ég held mig við hana.

Ef að þér finnst einhvað annað þá er það þín skoðun.

Heiðar kveður.


Fullorðinn

Mér finnst fólk teljast fullorðið 21 árs það er aldurinn sem að maður er orðinn fullvaxinn og þroskaður.
 Mér finnst það eilega eina sem gerir mann fullorðin ekki hvort maður axli ábyrgð fái sér vinnu og þannig. Það er alveg til fullorðið fólk sem á engan pening og axlar enga ábyrgð.

Kv. Hinni

Laugar!

Laugar, væntingar og veruleiki.

ég vænti þess að þetta mundi vera alveg  virkilega gaman og þetta var það;)

 

3. mars fórum við, 9.bekkur á laugar í  Sælingsdal. Við lögðum af stað um 10 og vorum komin þangað í hádeginu. Þegar við komum fórum við með töskurnar upp í herbergin og skoðuðum okkur aðeins um svo fórum við niður í matsal og fengum hádegismat. Eftir matin var eyða í svona klukkutíma eða eitthvað þannig og fórum svi í tíma. okkur var skipt í 2 hópa og ég var í hópi 1. ég fór fyrst í kjark og þol. Þar fórum við í ræðukeppni, stelpur á móti strákum og ræðuefnið var sjónvarp. ræðu rnar fóru ýmist út í að fara í útileigu uppi á jökli í bíl með engri miðstöð Halo Svo kom í ljós að strákarnir höfðu unnið og það munaði 2 stigum. Svo fórum við í leikfimi eða leik og sprell. um kvöldið var óvissuferð , þar sem var hrætt úr manni líftóruna. Daginn eftir fórum við í auglýsingar, galdra og leik og sprell, það var líka pínt okkur út í gönguferð. um kvöldið var ,,dragshow" , sundlaugapartý og mynd svo fórum við um hádegið daginn eftir.

Eva 


Laugar (Silja Sif)

Áður en við fórum á Laugar var ég búin að vera brjálæðislega spennt og bjóst við að þetta væri bara eins og Reykjaskóli eða svipað. 3 mars fórum við svo á Laugar og fyrsta daginn fórum við í leikfimi og það var geðveikt gaman svo fórum við í einhverja fleiri tíma svo um kvöldið fórum við í sund og  í "óvissuferðina" í henni vorum við bara að labba um svæðið og segja okkur draugasögur svo fórum við ofan í einhvern kjallara og þar sagði hann aðra draugasögu og svo stökk ein konan sem vann þarna var að bregða okkur sumir voru klikkað hræddir en auðvita ekki ég .CoolSvo fórum við bara uppáherbergin og bara chillað.Daginn eftir vakti Inga og Siga okkur snemma! Og við fórum í morgunn mat og í nokkra tíma. Um kvöldið var svo dragsjó og ég, Steinunn, Kolla og Hugrún vorum með Bjarna Maron hann var klikkað flottur en hann var að keppa við Anton,Teit og Pálma.Pálmi vann svo keppnina.Eftir dragið var farið í sund það var ískalt og ekki hægt að fara í heitapottinn. Þegar við komum uppúr fengum við köku og svo var hægt að horfa á mynd Austin Powers en ég hef séð hana svona 365 sinnum til að ég nennti ekki að horfa á hana en við vorum þá bara uppí herbergi að spjalla. Daginn eftir borðuðum við bara morgunn mat tókum til í herbergjunum okkar var allt í drasli svo fórum við bara heim.það var klikkað gama;)


Laugar :D Væntingar og Veruleiki

Laugar :d ég hélt að þetta yrði bara eins og reykja skóli, alveg skítfúlt og leiðinlegt. En þetta var alveg mjög gaman bara. Við komum þarna um kl. 12:30. Þá gerðum við herbergin klár. Ég var með Antoni og Alla í herbergi. haha Anton fékk svona dverga rúm, ekki var hann sáttur með það xD. hann vildi alls ekki fá það en hann var minnstur og smæstur af okkur. Síðna var farið í hádeigismat. Man ekkert hvað var að éta þá. Síðan var íþróttatími síðan matur (kex og mjólk) síðan var ræðukeppni síðan kvöldmatur sem var ekki góður einhver ýsa :S síðan var bara chill og síðan var kvöldganga og draugaferð. Þar var okkr sagt frá konu sem dó í baðkari og í hvert skipti sem einhver notar baðherbergið kemur svona eins og geðsjúklingur sem hleypur upp og niður stigan og svo búmm rafmangið af. síðan var ekki þannig séð draugasaga heldur bara skrýtinn saga. síðan var saga af einhverjum litlum strák sem dó í brunni og alltaf þegar einhver fer í sturt þá kemur hann og syngur Sofðu Unga Ástin Mín. síðan fórum við í einhvern kjallara þar sem okkur var sögð draugasga um þegar hann Jörgen var í kajaksyglingum og fór í skála og þar sem hann fékk rúm við náttborð og svo heyrði hann einhvern að labba uppi og síðan hætti það. svo þegar hann kom til baka dreymdi honum alltaf sama draum þegar hannn var að labba úti með gullfallegri gellu svo kemur svart ský og þa lítur hann niður og þá er gellan alveg eins og rotnað lík og þá herum við alveg geðveikt háan hvell og ég öskra alveg eins og smástelpa. vá hvað ég varð hræddur. síðan fórum við að lúlla. næsta dag var étið svo einhverjir tímar. um kvöldið var dragshow og pálmi vann :s samt var teitur lang lang lang bestur af öllum. síðan var eitthvað. og svo var bara farið heim næsta dag :( hefði viljað vera miklu lengur

 

takk fyrir mig og bless

 

Gunnar


Laugar , væntingar og veruleiki

Ég hélt að þetta myndi vera mjög gaman og þetta var það. Þetta var líka rosalega skemmtileg ferð það var alltaf gaman og við gerðum margt skemmtilegt. vonandi var gaman hjá öllum.ég var með Alla og Gunnari Eyþóri í herbergi og þeir voru undan mér inn og fengu stæri rúm en ég Angry og ég þurfti að fá eitthvað dvergarúm en það var svosem allt í lagi og fyrsti tíminn minn var íþróttir og síðan var kafi í einhvern tíma og svo var annar tími sem var um einhverja ræðu keppni sem var bara gaman við áttum að tala um gammalt fólk og strákarnir áttu að vera á móti gömlu fóki en stelpurnar voru með gömlu fólki. síðan var bara matur eða frír tími eða eitthvað ég man það bara ekki alveg og síðan fórum við minni mig eitthvað út og það var verið að segja drauga sögu og við fórum í einhvern kjallara og þar var brugðið okkur eða bilt okkur við en ég nenni ekki að segja frá öllu svo að ég segi ekki meira í bili en þetta var rosa gaman og ég vil þakka öllum sem skipulögðu þessa ferð

Anton Logi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband